Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1051/2016

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 387/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 378/2005 um nákvæmar reglur um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003 að því er varðar skyldur og verkefni tilvísunarrannsóknastofu Bandalagsins í tengslum við umsóknir um leyfi fyrir aukefnum í fóðri.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, d-liður, svohljóðandi:

  d) Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1761 frá 1. október 2015 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 378/2005 að því er varðar skýrslur tilvísunarrannsóknarstofu Bandalagsins, þóknanir og rannsóknarstofur sem tilgreindar eru í II. viðauka við reglugerðina. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 5/2016, frá 5. febrúar 2016. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 17. nóvember 2016, bls. 235.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. nóvember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica