Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

475/2016

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 107/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 183/2005 um kröfur varðandi hollustuhætti sem varða fóður.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 7/2016, frá 6. febrúar 2016, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1905 frá 22. október 2015 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 183/2005 að því er varðar prófun á olíum, fitu og afurðum sem eru fengnar úr þeim fyrir díoxíni. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, frá 31. mars 2016, bls. 147.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. maí 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica