Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

707/2014

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 882/2010 um gæðamat, flokkun og merkingu sláturafurða. - Brottfallin

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka III við reglugerðina:

  1. 1. mgr. 1. tölul. um grísi orðast svo:
    Ung svín, geltir, sem vanaðir hafa verið innan þriggja mánaða aldurs eða bólusettir gegn galtarlykt og gyltur sem ekki hafa gotið.
  2. 3. tölul. um gelti orðast svo:
    Geltir á öllum aldri, sem hvorki hafa verið vanaðir innan þriggja mánaða aldurs né verið bólusettir gegn galtarlykt eða bólusetning hefur mistekist.
    Geltir aðgreinast í 2 flokka:
    GÖLTUR I: Skrokkar af ógeltum grísum sem ekki hafa verið bólusettir gegn galtarlykt eða bólusetning hefur mistekist.
    GÖLTUR II: Skrokkar af öðrum göltum.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. júlí 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica