Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

304/2013

Reglugerð um strandveiðar fiskveiðiárið 2012/2013. - Brottfallin

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um strandveiðar, þar sem fenginn afli telst ekki til aflamarks eða krókaaflamarks, samkvæmt 6. gr. a í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

2. gr.

Strandveiðar.

Í maí, júní, júlí og ágúst 2013 er, að fengnu leyfi Fiskistofu, heimilt að veiða á handfæri allt að 8.600 lestir samtals af óslægðum botnfiski, sem ekki reiknast til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra fiskiskipa sem stunda handfæraveiðar samkvæmt reglugerð þessari.

3. gr.

Leyfi til veiða.

Fiskistofu er eingöngu heimilt að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða að fullnægðum ákvæðum 5. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.

Einungis er heimilt að veita hverri útgerð, eiganda, einstaklingi eða lögaðila, leyfi til strandveiða fyrir eitt fiskiskip.

Eigandi fiskiskips skal vera lögskráður á skipið. Þegar fiskiskip er í eigu lögaðila er fullnægjandi ef einn eigenda lögaðilans er lögskráður á skipið. Í umsókn lögaðila um leyfi til strandveiða skulu koma fram upplýsingar um eignarhald á lögaðilanum og þann/þá sem koma til með að vera lögskráðir á fiskiskip.

Óheimilt er að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða hafi aflamark í þorskígildum talið, umfram það aflamark sem flutt hefur verið til þess á fiskveiðiárinu, verið flutt af því. Eftir útgáfu leyfis til strandveiða er skipum óheimilt að flytja frá sér aflamark þess árs umfram það sem flutt hefur verið til skips.

Við útgáfu Fiskistofu á leyfi til fiskiskips til handfæraveiða, samkvæmt reglugerð þessari, falla úr gildi önnur leyfi þess til að stunda veiðar til loka fiskveiðiársins 2011/2012 sem gefin eru út með stoð í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

4. gr.

Strandveiðisvæði.

Heimildir til strandveiða samkvæmt þessari reglugerð skiptast á fjögur svæði, sem eru:

  1. Eyja- og Miklaholtshreppur - Súðavíkurhreppur,
  2. Strandabyggð - Grýtubakkahreppur,
  3. Þingeyjarsveit - Djúpavogshreppur,
  4. Sveitarfélagið Hornafjörður - Borgarbyggð.

Í hlutdeild hvers svæðis koma heimildir í óslægðum botnfiski, í tonnum talið, sem hér segir:

Botnfiskur

maí

júní

júlí

ágúst

Svæði A

715

858

858

429

Svæði B

509

611

611

305

Svæði C

551

661

661

331

Svæði D

600

525

225

150


Fiskistofu er eingöngu heimilt að veita skipi leyfi til strandveiða miðað við landsvæði þar sem útgerð skips á heimilisfesti samkvæmt þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra og skal öllum afla veiðiskips landað innan þess landsvæðis. Sama fiskiskipi verður aðeins veitt leyfi frá einu landsvæði á fiskveiðiárinu.

Náist ekki að veiða heimilaðan afla tiltekins landsvæðis í maí, júní eða júlí bætast ónýttar heimildir við aflaheimildir næsta mánaðar á eftir. Sama gildir að breyttu breytanda ef afli er umfram heimildir.

Fiskistofa skal stöðva veiðar á tilteknu svæði með auglýsingu, þegar sýnt er að leyfi­leg­um heildarafla verði náð, og skulu fiskiskip sem leyfi hafa á því svæði þá hætta veiðum.

5. gr.

Veiðar.

Leyfi til handfæraveiða samkvæmt reglugerð þessari eru bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Óheimilt er að stunda veiðar föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Þá eru strand­veiðar bannaðar á uppstigningardag, annan í hvítasunnu, 1. maí, 17. júní og á frídegi verslunarmanna.
  2. Hver veiðiferð skal eigi standa lengur en 14 klukkustundir. Miðað er við þann tíma er fiskiskip lætur úr höfn til veiða til þess er það kemur til hafnar aftur til löndunar. Aðeins er heimilt að fara í eina veiðiferð á hverjum degi. Nái bátur ekki af óvið­ráðan­legum ástæðum, s.s. vegna vélarbilunar, til hafnar innan 14 klukku­stunda frá upphafi veiðiferðar getur Fiskistofa þó, að fengnum skýringum útgerðar, fallist á að skilyrði þessa töluliðar séu uppfyllt.
  3. Skipstjóri skal tilkynna brottför úr höfn til vaktstöðvar siglinga handvirkt með talstöð um næstu strandstöð. Í tilkynningu skal ávallt koma fram úr hvaða höfn haldið er í veiðiferð. Ennfremur í hvaða höfn er komið aftur og afla er landað. Fiski­skip skal hafa um borð sjálfvirkan fjareftirlitsbúnað og skal hin sjálfvirka skráning lögð til grundvallar við útreikning sóknar. Óheimilt er að fara í veiðiferð nema fjareftirlitsbúnaður um borð sé virkur. Bili búnaður í veiðiferð, skal strax tilkynna það til Landhelgisgæslu og halda tafarlaust til hafnar til löndunar.
  4. Aldrei er heimilt að hafa fleiri en fjórar handfærarúllur um borð. Engin önnur veiðarfæri en handfærarúllur skulu vera um borð.
  5. Á hverju fiskiskipi er aðeins heimilt að draga 650 kg, í þorskígildum talið, af kvóta­bundnum tegundum, í hverri veiðiferð.
  6. Skylt er að landa öllum afla í lok hverrar veiðiferðar og skal hann veginn og skráður endanlega hér á landi.
  7. Fiskistofu er heimilt að krefjast gagna um eignarhald á lögaðila, aðgangs að árs­reikningum og upplýsingum úr hlutafélagaskrá til að staðreyna skilyrði 3. mgr. 3. gr.

6. gr.

Viðurlög.

Brot gegn reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt VI. kafla laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. a laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð um strandveiðar nr. 206/2012, með áorðnum breytingum.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. apríl 2013.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica