Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

520/2012

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 284/2012 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 1. maí 2010, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 284/2012 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 961/2011.

2. gr.

Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Allur kostnaður við opinbert eftirlit, þ.m.t. sýnataka, greining sýna, geymsla, förgun og allar aðrar ráðstafanir sem gripið er til skal greiddur af innflutnings- og dreifingaraðilum eftir því sem við á.

4. gr.

Innflutnings- eða dreifingaraðilar sem flytja inn eða dreifa vörum sem reglugerð þessi tekur til, skulu senda Matvælastofnun tilkynningu og gögn um fyrirhugaðan innflutning ásamt upplýsingum um áætlaðan komutíma.

5. gr.

Matvælastofnun hefur eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt samkvæmt 6. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli og 3. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

6. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 27. gr. b og 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 386/2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 4. júní 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica