Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

387/2012

Reglugerð um úthlutun á opnum tollkvótum á svínakjöti. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðauka IV A, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

Tollskrárnr.:

Svínakjöt, fryst:

-- Annað:

ex0203.2902

Annað - svínasíður með beini

15.05.12 - 31.08.12

ótilgreint

0

144

ex0203.2909

Annað - svínasíður beinlaust

15.05.12 - 31.08.12

ótilgreint

0

182

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 31. ágúst 2012.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 25. apríl 2012.

F. h. r.

Ólafur Friðriksson.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica