Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

320/2012

Reglugerð um birtingu niðurstaðna vegna eftirlits með matvælum.

1. gr. Markmið og gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um heimildir eftirlitsaðila til að birta með opinberum hætti niðurstöður úr eftirliti með framleiðslu og dreifingu matvæla. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að gagnsæi með því að birta með opinberum hætti niðurstöður sem fást úr slíku eftirliti. Með reglugerðinni er leitast við að vernda hagsmuni neytenda og gefa neytendum kost á upplýstu vali með tilliti til matvælanna sem þeir neyta.

2. gr. Almennt um birtingu niðurstaðna úr eftirliti með framleiðslu og dreifingu matvæla.

Eftirlitsaðila, skv. 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, er heimilt að birta niðurstöður úr almennu eftirliti með framleiðslu og dreifingu matvæla hjá matvælafyrirtækjum. Heimilt er að birta niðurstöður úr eftirliti í skýrslu og/eða á heimasíðu hlutaðeigandi eftirlitsaðila. Eftirlitsaðila er heimilt að flokka niðurstöður eftirlitsins eftir fyrirtækjum, vörum og/eða vöruflokkum.

3. gr. Birting rannsóknaniðurstaðna og eftirlitsaðgerða í einstökum tilvikum.

Eftirlitsaðila er sömuleiðis heimilt að birta niðurstöður úr tilteknu eftirliti með framleiðslu og dreifingu matvælafyrirtækja á matvælum í eftirfarandi tilvikum:

  1. Þegar niðurstöður eftirlits leiða í ljós að framleiðsla, dreifing og markaðssetning matvæla er ekki í samræmi við ákvæði laga nr. 93/1995 um matvæli eða reglugerða settra á grundvelli þeirra.
  2. Þegar niðurstöður úr efna- og örverugreiningum leiða í ljós að matvæli eru ekki í samræmi ákvæði laga nr. 93/1995 um matvæli eða reglugerða settra á grundvelli þeirra.
  3. Þegar eftirlitsaðili veitir matvælafyrirtæki áminningu, stöðvar starfsemi matvælafyrirtækja að hluta eða öllu leyti eða þegar eftirlitsaðili gefur fyrirmæli um afmengun eða innköllun eða þegar eftirlitsaðili takmarkar eða stöðvar framleiðslu eða markaðssetningu, leggur hald á, fer fram á förgun matvæla eða grípur til einhverra aðgerða sem kveðið er á um í XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli.

Sé talin ástæða til birtingar á niðurstöðum skal birting fara fram á heimasíðu hlutaðeigandi eftirlitsaðila.

Matvælastofnun er heimilt að taka saman upplýsingar sem birtar eru skv. 2. og 3. gr. og birta á heimasíðu stofnunarinnar.

4. gr. Kærur og frestun birtingar.

Stjórnsýslukæra aðila máls til ráðherra frestar ekki birtingu eftirlitsaðila.

5. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 28. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 29. mars 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.