1. gr.
Á eftir orðunum: "afli síðasta sólarhrings" í lokamálslið 7. gr. komi orðin: miðað við kl. 24.00.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 12. apríl 2012.
F. h. r.
Jóhann Guðmundsson.
Kristján Freyr Helgason.