Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

769/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 630/2011, um ráðstöfun aflaheimilda í skötusel á fiskveiðiárinu 2010/2011. - Brottfallin

1. gr.

Við 4. gr. bætist ný málsgrein sem verður lokamálsgrein og orðist svo:

Heimilt er að flytja 10% af aflaheimildum sem úthlutað hefur verið samkvæmt ákvæði I til bráðabirgða í lögum nr. 22/2010, frá fiskveiðiárinu 2010/2011 yfir á fiskveiðiárið 2011/2012.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 9. ágúst 2011.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Þórhallur Ottesen.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica