Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

847/2011

Reglugerð um ráðstöfun aflaheimilda í skötusel á fiskveiðiárinu 2011/2012. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun aflaheimilda í skötusel samkvæmt ákvæði a til bráðabirgða í lögum nr. 70/2011, um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

2. gr.

Úthluta skal allt að 350 lestum af skötusel á fiskveiðiárinu 2011/2012.

Heimilt er að úthluta á skip allt að 10 lestum í senn gegn greiðslu gjalds enda hafi viðkomandi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni. Þó er skilyrði að skip, sem hefur framselt aflamark sitt í skötusel sem úthlutað var á grundvelli aflahlutdeildar, hafi a.m.k. aflamark í skötusel sem nemur því magni sem skipinu er úthlutað á grundvelli reglugerðar þessarar, enda hafi framsal aflamarks átt sér stað eftir gildistöku reglugerðar þessarar.

3. gr.

Fiskistofa skal auglýsa eftir umsóknum um úthlutun aflaheimilda í skötusel.

Fiskistofa annast úthlutun aflaheimilda á grundvelli umsókna sem borist hafa Fiskistofu eigi síðar en 5. október 2011. Ef umsóknir um aflaheimildir eru umfram þær aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru skal Fiskistofa skipta því sem til ráðstöfunar er jafnt á milli umsækjenda, enda hafi umsækjandi ekki sótt um minna magn en því nemur.

Verð á aflaheimildum skötusels er 176 kr. hvert kg og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Hafi gjald ekki verið greitt í síðasta lagi 18. október 2011 fellur réttur útgerðar til úthlutunar á grundvelli umsóknarinnar niður og skiptast aflaheimildirnar á önnur skip enda hafi úthlutun þeirra ekki numið 10 lestum. Komi til aukinnar úthlutunar hafa útgerðir 7 daga frá dagsetningu tilkynningar Fiskistofu þar að lútandi til að greiða gjald vegna þeirrar úthlutunar.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 15. september 2011.

Jón Bjarnason.

Indriði B. Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica