Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

1012/2011

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 1168/2006 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2160/2003 að því er varðar markmið Bandalagsins sem sett eru til að draga úr algengi tiltekinna sermigerða salmonellu í varphænum af tegundinni Gallus gallus og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1003/2005. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 133/2007 frá 1. maí 2010 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 1168/2006 frá 31. júlí 2006 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2160/2003 að því er varðar markmið Bandalagsins sem sett eru til að draga úr algengi tiltekinna sermigerða salmonellu í varphænum af tegundinni Gallus gallus og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1003/2005.

2. gr.

Reglugerð nr. 1168/2006 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Þrátt fyrir afmörkun gildissviðs reglugerðar nr. 1168/2006 við Salmonella enteritidis og Salmonella typhimurium skulu efnisákvæði reglugerðarinnar taka til allra sermisgerða salmonellu.

4. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 10. gr. laga nr. 96/1997 um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, og öðlast gildi 1. nóvember 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. október 2011.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica