Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1043/2011

Reglugerð um eftirlit með heilbrigði eldisdýra og dýraafurðum í viðskiptum innan Evrópska efnahagssvæðisins.

I. KAFLI Inngangur.

1. gr.

Heilbrigðiseftirlit með lifandi eldisdýrum, afurðum þeirra auk annarra dýraafurða sem koma frá EES-ríkjum skal fara fram samkvæmt þessari reglugerð.

2. gr.

Í þessari reglugerð er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:

  1. Heilbrigðiseftirlit: Eftirlit með ástandi og/eða formsatriðum á sviði stjórnsýslu sem tekur til þeirra dýra eða afurða sem um getur í 1. gr. og er ætlað að vernda, beint eða óbeint, heilbrigði manna eða dýra.
  2. Viðskipti: Viðskipti milli ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu með vörur.
  3. Eldisdýr: Lifandi fiskur, krabbadýr eða lindýr frá eldisstöð, óháð þroskastigi, að meðtöldum dýrum sem lifa upprunalega villt en eru ætluð fyrir eldisstöð.
  4. Eldisstöð: Eldistöð eða athafnasvæði dreifingaraðila, eins og skilgreint er samkvæmt gildandi innlendum reglum.
  5. Miðstöð eða fyrirtæki: Fyrirtæki sem framleiðir, tekur til geymslu eða vinnslu afurðirnar sem um getur í 1. gr.
  6. Bújarðir: Landbúnaðarbýli eða athafnasvæði dreifingaraðila eins og skilgreint er samkvæmt gildandi reglum.
  7. Lögbært yfirvald: Opinber eftirlitsaðili sem fer með eftirlit samkvæmt 6. gr. eða 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
  8. Opinber dýralæknir: Dýralæknir sem er tilnefndur af Matvælastofnun.
  9. EES-ríki: Ríki á Evrópska efnahagssvæðinu.
  10. ESA: Eftirlitsstofnun EFTA.

II. KAFLI Eftirlit á upprunastað.

3. gr.

  1. Viðskipti með eldisdýr og afurðir samkvæmt 1. gr. skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði:

    1. eldisdýrin og afurðir þeirra sem um getur í viðauka A skulu fullnægja þeim kröfum sem fram koma í þeim EES-gerðum sem þar eru taldar upp og dýraheilbrigðiskröfum viðtökuríkisins;
    2. eldisdýrin og afurðir skulu vera frá eldisstöðvum, bújörðum, miðstöðvum eða matvælafyrirtækjum sem opinbert reglulegt heilbrigðiseftirlit nær til í samræmi við 3. mgr.;
    3. eldisdýr og afurðir skulu annars vegar auðkennd samkvæmt þeim reglum sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu og hins vegar vera skráð þannig að unnt sé að rekja til uppruna- eða umflutningseldisstöðvar, uppruna- eða umflutningsbújarðar, miðstöðvar eða matvælafyrirtækis;
    4. við flutning eldisdýra og afurða skal fylgja þeim heilbrigðisvottorð og/eða önnur skjöl eins og kveðið er á um í reglugerðum eða tilskipunum sem vísað er til í viðauka A, og þegar um er að ræða önnur dýr og afurðir sem falla undir 1. gr., í reglum EES-viðtökuríkis. Þessi vottorð eða skjöl skulu gefin út af opinberum dýralækni sem ber ábyrgð á upprunaeldisstöðinni, -miðstöðinni, -bújörðinni eða matvælafyrirtækinu og skulu fylgja eldisdýrunum og afurðunum á viðtökustað;
    5. þegar margir viðtökustaðir koma við sögu í flutningunum skal flokka eldisdýr og afurðir saman í eins margar vörusendingar og viðtökustaðirnir eru. Hverri sendingu skal fylgja vottorð og/eða skjöl sem um getur í d-lið;
    6. þegar þau eldisdýr eða afurðir sem falla undir viðauka A fullnægja innlendri löggjöf, og eru ætluð til útflutnings til þriðja ríkis um yfirráðasvæði annars EES-ríkis, verður flutningurinn - nema í bráðatilvikum sem tilskilin leyfi hafa fengist fyrir hjá lögbæru yfirvaldi til að tryggja velferð dýranna - að vera undir eftirliti tollayfirvalda á þeim stað þar sem tollsvæði viðkomandi EES-ríkis endar.
  2. Óheimilt er:

    • að flytja út til annars EES-ríkis, eldisdýr og afurðir sem um getur í 1. gr., sem mögulega þarf að slátra samkvæmt innlendri áætlun um útrýmingu sjúkdóma eða hefur verið slátrað samkvæmt innlendri áætlun um útrýmingu sjúkdóma;
    • að flytja til annars EES-ríkis þau eldisdýr og afurðir sem um getur í viðauka A ef þau eru ekki hæf til markaðssetningar á eigin yfirráðasvæði af heilbrigðisástæðum.
  3. Með fyrirvara um eftirlitsskyldur opinbers dýralæknis samkvæmt reglum sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu, skal lögbært yfirvald hafa eftirlit með eldisstöðvum, bújörðum, viðurkenndum mörkuðum og söfnunarstöðum, miðstöðvum eða matvælafyrirtækjum til að fullvissa sig um að eldisdýr og afurðir sem eiga á viðskipti með fullnægi kröfum þessarar reglugerðar og sérstaklega þau skilyrði sem sett eru í c-lið 1. mgr. vegna auðkenningar. Þegar grunur leikur á að kröfum hafi ekki verið fullnægt skal lögbært yfirvald viðhafa nauðsynlegt eftirlit og, sé grunurinn staðfestur, grípa til nauðsynlegra ráðstafana sem geta falið í sér eftir atvikum, stöðvun á starfsemi, afturköllun starfsleyfis, einangrun viðkomandi eldisstöðvar, bújarðar, miðstöðvar eða matvælafyrirtækis.

4. gr.

  1. Lögbært yfirvald skal hafa eftirlit með að:

    1. eigendur búfénaðar, eldisdýra og framleiðendur afurða sem um getur í 1. gr. fullnægi innlendum kröfum eða kröfum EES sem fjallað er um í þessari reglugerð og varða dýraheilbrigði á öllum stigum framleiðslu og markaðssetningar;
    2. þau eldisdýr og afurðir sem um getur í viðauka A, og aðrar dýraafurðir, séu skoðuð að minnsta kosti eins nákvæmlega, frá dýraheilbrigðissjónarmiði, og væru þau ætluð fyrir innlendan markað, nema sérstaklega sé kveðið á um annað í reglum EES;
    3. eldisdýr og aðrar dýraafurðir séu flutt með viðeigandi flutningatækjum sem uppfylla reglur um hreinlæti.
  2. Lögbært yfirvald skal við útgáfu vottorða eða skjala sem fylgja eldisdýrunum, afurðum þeirra svo og öðrum dýraafurðum samdægurs tilkynna lögbærum yfirvöldum í EES-viðtökuríkinu í gegnum upplýsingaskiptakerfi, þær upplýsingar sem ESA ákveður.

III. KAFLI Eftirlit á viðtökustað.

5. gr.

  1. .

    1. Lögbært yfirvald getur á viðtökustað eldisdýra og afurða, kannað með óhlutdrægum skyndikönnunum á heilbrigði hvort kröfum 3. gr. hafi verið fullnægt og getur einnig tekið sýni í þessu sambandi. Jafnframt getur lögbært yfirvald, hafi það rökstuddan grun um brot, framkvæmt eftirlit við flutning eldisdýra og afurða;
    2. þegar dýrin og afurðir samkvæmt 1. gr. sem eru upprunnar í öðru EES-ríki og eru ætlaðar:

      1. matvælafyrirtæki, viðurkenndum markaði eða söfnunarstað ber að tryggja að þeim berist einungis eldisdýr og afurðir sem fullnægja kröfum þessarar reglugerðar að því er varðar merkingu og fylgiskjöl sbr. 1. mgr. 3. gr. Lögbært yfirvald skal ganga úr skugga um, með óhlutdrægri skoðun á vottorðum eða skjölum, sem fylgja eldisdýrum og afurðum, að umræddar kröfur séu uppfylltar;
      2. sláturhúsi sem er undir eftirliti opinbers dýralæknis verður hann að tryggja, einkum á grundvelli vottorðsins eða fylgiskjalsins, að einungis eldisdýrum sem uppfylla kröfur 1. mgr. 3. gr. sé slátrað. Rekstraraðili sláturhússins ber ábyrgð á slátrun eldisdýra sem uppfylla ekki kröfur c- og d-liðar 1. mgr. 3. gr.;
      3. skráðum dreifingaraðila sem skiptir upp sendingum eða starfsstöð sem er ekki undir stöðugu eftirliti skal lögbært yfirvald líta á slíkan dreifingaraðila eða starfsstöð sem viðtakanda eldisdýra eða afurða;
      4. eldisstöðvum, bújörðum, miðstöðvum eða matvælafyrirtækjum, einnig í þeim tilvikum þegar sendingin er að hluta afhent meðan á flutningi stendur, skal hverju eldisdýri, hópi eldisdýra eða afurðum fylgja samkvæmt 3. gr. frumrit af heilbrigðisvottorði eða fylgiskjali þar til það er komið í hendur þess viðtakanda sem þar er tilgreindur.

Viðtakendur þeir sem um getur í iii- og iv-lið 1. mgr. skulu áður en til uppskiptingar eða sölu kemur, ganga úr skugga um að auðkennin, vottorðin eða skjölin sem um getur í c- og d-lið 1. mgr. 3. gr. séu til staðar og tilkynna lögbæru yfirvaldi um sérhverja vanrækslu eða frávik, og verði þess vart einangra viðkomandi eldisdýr þar til lögbært yfirvald hefur tekið ákvörðun um hvað skuli gera.

Ábyrgðirnar sem viðtakendur sem um getur í iii- og iv-lið verða að gefa skulu tilgreindar í samningi við lögbært yfirvald og undirritaðar þegar fyrirframskráningin sem kveðið er á um í 12. gr. fer fram. Lögbært yfirvald skal gera slembiathuganir til að ganga úr skugga um að ábyrgðirnar haldi. Þessi liður gildir að breyttu breytanda um viðtakendur afurðanna sem um getur í 1. gr.

  1. Allir viðtakendur sem tilgreindir eru á vottorðinu eða skjalinu sem kveðið er á um í d-lið 1. mgr. 3. gr.:

    1. verða, fari lögbært yfirvald fram á það vegna eftirlitsins sem um getur í 1. mgr., að tilkynna fyrirfram um komu eldisdýra og afurða frá öðru EES-ríki og tilgreina þá sérstaklega um eðli sendingarinnar og áætlaðan komudag. Tilkynningafrestur skal að öllu jöfnu ekki vera styttri en einn dagur. Engu að síður getur lögbært yfirvald í undantekningartilvikum krafist tveggja daga tilkynningafrests;
    2. skulu geyma í að minnsta kosti sex mánuði þau heilbrigðisvottorð eða skýrslur sem um getur í 3. gr. svo að unnt sé að framvísa þeim fari lögbært yfirvald fram á slíkt. Lögbært yfirvald getur krafist þess að gögnin séu geymd lengur.

6. gr.

  1. Þegar eldisdýr á samkvæmt reglum sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu, að fara í sóttkví skal það að öllu jöfnu vera á viðtökueldisstöðinni.
  2. Nota má sóttvarnarstöð ef dýraheilbrigðissjónarmið styðja það. Líta ber á slíka stöð sem viðtökustað sendingarinnar. Tilkynna skal ESA um ástæður slíkrar aðgerðar.

7. gr.

  1. Við eftirlit sem fer fram á landamærastöð þar sem heimilt er að flytja eldisdýr og afurðir sem um getur í viðauka A, frá þriðju ríkjum inn á EES-svæðið, skal:

    1. fara fram sannprófun vottorða eða skjala sem fylgja eldisdýrum og afurðum;
    2. fara að þeim reglum sem mælt er fyrir um í 5. gr.;
    3. tryggja að eldisdýr og afurðir frá þriðju löndum heyri undir þær reglur sem settar eru í reglugerð nr. 1044/2011 um eftirlit með innflutningi á dýraafurðum frá ríkjum utan EES.

8. gr.

  1. Verði lögbært yfirvald þess áskynja við eftirlit sem fram fer á viðtökustað sendingar eða meðan á flutningi stendur:

    1. að til staðar séu sjúkdómsvaldar sem orsaka sjúkdóm sem er tilkynningarskyldur dýrasjúkdómur sem getur einnig lagst á menn eða annar sjúkdómur, eða eitthvert það ástand sem getur stofnað dýrum eða mönnum í hættu, eða að afurðirnar komi frá svæði sem er smitað af dýrasjúkdómi, skal það gefa fyrirmæli um að eldisdýrunum eða dýraafurðum sé eftir atvikum komið í sóttkví á næstu sóttvarnarstöð eða þeim slátrað og/eða fargað.
      Lögbært yfirvald skal í slíkum tilvikum tilkynna lögbærum yfirvöldum annarra ríkja innan EES skriflega, með þeim hætti sem á best við, um þær upplýsingar sem liggja fyrir, ákvarðanir sem hafa verið teknar og rökstuðning fyrir þeim.
      Beita má verndarráðstöfunum sem kveðið er á um í 10. gr.;
    2. að, eldisdýrin eða afurðirnar fullnægi ekki skilyrðum um dýraheilbrigði, geta þau, að því tilskildu að það stangist ekki á við heilbrigðis- eða dýraheilbrigðissjónarmið, leyft sendanda eða fulltrúa hans að velja á milli þess:

      • þegar efna- eða lyfjaleifar eru til staðar, að því er varðar eldisdýr og afurðir sé eldisdýrunum og afurðunum haldið undir eftirliti þar til staðfest hefur verið að reglunum sé fylgt, og, ef reglunum er ekki fylgt, að ráðstöfunum sem kveðið er á um í innlendum reglum sé beitt,
      • að eldisdýrunum sé slátrað eða afurðunum fargað eftir atvikum,
      • að eldisdýrin eða afurðir séu send til baka með leyfi lögbærs yfirvalds EES-sendingarríkis og tilkynningu fyrirfram til EES-umflutningsríkis eða -ríkja

Komi hins vegar í ljós að vottorð eða skýrslur eru ekki samkvæmt settum reglum verður sendandi eða umboðsmaður hans að fá umþóttunartíma til að koma skjölunum í lag áður en gripið er til aðgerða samkvæmt þessari grein.

  1. ESA skal taka saman skrá yfir þá sjúkdómsvalda og sjúkdóma sem um getur í 1. mgr.

9. gr.

  1. Í því tilviki sem kveðið er á um í 8. gr. skal lögbært yfirvald viðtökuríkis hafa samband við lögbær yfirvöld sendingarríkis án tafar. Síðarnefndu yfirvöldin skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir og tilkynna því fyrrnefnda um eðli eftirlitsins sem fram hefur farið, ákvarðanir sem hafa verið teknar og rökstuðning fyrir þeim. Óttist lögbært yfirvald viðtökuríkis að ráðstafanirnar séu ófullnægjandi skal það leita sameiginlegra leiða og aðferða til að bæta stöðuna með lögbærum yfirvöldum sendingarríkis. Ef svo ber undir getur það falið í sér skoðun á staðnum. Komi endurtekin vanræksla fram við eftirlit sem kveðið er á um í 8. gr. skal lögbært yfirvald viðtökuríkisins tilkynna það ESA og dýraheilbrigðisyfirvöldum annarra EES-ríkja.

    ESA getur, að beiðni lögbærs yfirvalds viðtökuríkisins eða að eigin frumkvæði, og að teknu tilliti til þess hvers eðlis brotið er:

    • sent skoðunarmenn, í samráði við lögbær innlend yfirvöld, til viðkomandi staðar,
    • falið opinberum dýralækni, en nafn hans verður að vera á skrá sem ESA tekur saman að tillögu EES-ríkjanna og samkomulag er um meðal hlutaðeigandi aðila, að kanna aðstæður á staðnum,
    • farið fram á það við lögbært yfirvald að það auki eftirlit með umræddri eldisstöð, bújörð, miðstöð, matvælafyrirtæki, viðurkenndum markaði, söfnunarstað eða upprunasvæði. ESA skal tilkynna EES-ríkjum um niðurstöður sínar. Uns ESA hefur komist að niðurstöðu verður sendingarríkið, að beiðni EES-viðtökuríkis, að bæta eftirlit með eldisdýrum og afurðum frá umræddri eldisstöð, bújörð, miðstöð, fyrirtæki, viðurkenndum markaði, söfnunarstað eða upprunasvæði og fresta útgáfu vottorða eða flutningsskírteina ef til þess liggja alvarlegar ástæður er varða heilbrigði manna eða dýra. EES-viðtökuríkið getur fyrir sitt leyti aukið tíðni eftirlits með eldisdýrum sem koma frá sömu eldisstöð, bújörð, miðstöð, matvælafyrirtæki, viðurkenndum markaði, söfnunarstað eða svæði.

IV. KAFLI Sameiginleg ákvæði.

10. gr.

  1. Lögbært yfirvald skal þegar í stað tilkynna ESA og öðrum EES-ríkjum ef upp koma á Íslandi aðrir sjúkdómar en þeir sem eru tilkynningarskyldir, dýrasjúkdómar sem geta einnig lagst á menn eða annar sjúkdómur, eða eitthvert það ástand sem getur stofnað heilbrigði dýra eða manna í hættu.

    Lögbært yfirvald EES-sendingarríkis skal þegar í stað koma í framkvæmd eftirlits- eða varúðarráðstöfunum, einkum að því er tekur til þess að ákvarða sérstök eftirlitssvæði, eða gera einhverja aðra ráðstöfun sem það álítur viðeigandi.

    Komist lögbært yfirvald að því við eftirlitið sem um getur í 5. gr. að einhver sjúkdómanna eða orsakanna sem um getur í 1. mgr. séu til staðar getur hún, ef nauðsyn krefur, gert varúðarráðstafanirnar, þar með talið að setja dýrin í sóttkví.

    Uns ráðstafanir hafa verið gerðar samkvæmt 4. mgr. getur lögbært yfirvald, liggi til þess mikilvægar ástæður er varða heilbrigði manna eða dýra, gripið til tímabundinna verndarráðstafana gagnvart umræddum eldisstöðvum, miðstöðvum eða matvælafyrirtækjum eða, þegar um dýrasjúkdóm er að ræða, komið á verndarsvæði, sbr. reglugerð nr. 665/2001 um viðbrögð við smitsjúkdómum. Tilkynna skal ESA og öðrum EES-ríkjum án tafar um ráðstafanir sem gerðar eru.

  2. Einn eða fleiri fulltrúar ESA geta, að beiðni lögbæra yfirvaldsins eða að frumkvæði ESA, farið rakleiðis á umræddan stað til að rannsaka, í samvinnu við lögbært yfirvald, hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar og skal leggja fram álit á ráðstöfununum.
  3. Hafi ESA ekki verið tilkynnt um ráðstafanirnar, eða telji hún ráðstafanirnar ófullnægjandi, getur hún, í samvinnu við lögbært yfirvald, gripið til tímabundinna verndarráðstafana vegna eldisdýra eða afurða sem koma frá svæði sem er sýkt af dýrasjúkdóminum eða frá ákveðinni starfsstöð, framleiðslumiðstöð eða matvælafyrirtæki.

11. gr.

Lögbært yfirvald skal tryggja að allir dreifingaraðilar sem taka þátt í viðskiptum innan Evrópska efnahagssvæðisins með dýrin og/eða afurðirnar sem falla undir 1. gr.:

  1. hafi tilskilin leyfi;
  2. haldi skrá yfir afgreiðslu og, vegna aðila sem um getur í iii-lið í b-lið 1. mgr. 5. gr., síðari viðtökustaði dýranna eða afurðanna. Geyma skal skrána í þann tíma sem lögbært yfirvald ákveður svo að unnt sé að framvísa henni óski lögbært yfirvald eftir því.

12. gr.

Lögbært yfirvald skal tryggja að starfsmenn hennar séu færir um að:

  • skoða eldisstöðvar, mannvirki, flutningatæki og aðferðir við mörkun og auðkenningu dýra,
  • hafa eftirlit, að því er varðar afurðir sem eru taldar upp í viðauka A,
  • taka sýni úr:

    1. eldisdýrum sem á að selja, setja á markað eða flytja;
    2. afurðum sem á að taka til geymslu, selja, setja á markað eða flytja,
  • rannsaka skýrslu- eða tölvugögn sem varða eftirlit á grundvelli þeirra ráðstafana sem gerðar eru samkvæmt þessari reglugerð.

Forsvarsmönnum eldisstöðva, miðstöðva eða matvælafyrirtækja sem eru undir eftirliti er skylt að veita lögbæru yfirvaldi liðsinni við eftirlit í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

13. gr.

Sendandi eða sá aðili sem ber ábyrgð á afurðunum eða dýrunum, skal standa undir kostnaði er hlýst af því að endursenda sendinguna, geyma, einangra dýrin eða afurðirnar eða, eftir því sem við á, slátra þeim eða farga svo og kostnaði af ráðstöfunum í 1. mgr. 8. gr.

14. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

15. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

16. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 55/1998 um sjávarafurðir og lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og til innleiðingar á tilskipunum ráðsins nr. 89/662/EBE, 90/425/EBE, 90/539/EBE, 90/667/EBE, 90/675/EBE, 91/68/EBE, 91/174/EBE, 91/493/EBE, 91/494/EBE, 91/495/EBE 91/496/EBE, 91/628/EBE, 92/45/EBE, 92/46/EBE, 92/60/EBE, 92/65/EBE, 92/67/EBE, 92/118/EBE, tilskipun þingsins og ráðsins nr. 2002/33/EB, 2004/41/EB og ákvarðana framkvæmdastjórnarinnar nr. 93/444/EBE, 94/338/EB og 94/339/EB. Reglugerðin tekur þegar gildi og frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 448/2005, um eftirlit með heilbrigði eldisdýra og afurða þeirra í viðskiptum innan EES-svæðisins og reglugerð nr. 512/2005 um eftirlit með heilbrigði sjávareldisdýra og afurðum þeirra í viðskiptum innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 7. nóvember 2011.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.