Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

1096/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 737, 20. júlí 2011, um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða. - Brottfallin

1. gr.

Á eftir 3. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein er verður 3. gr a, svohljóðandi:

Því aflamarki sem ekki var úthlutað í upphafi fiskveiðiársins skal úthlutað miðað við aflahlutdeild eins og hún er við gildistöku reglugerðar þessarar.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 2. desember 2011.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Indriði B. Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica