Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

2/2012

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 660/2011 um loðnuveiðar erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2011/2012. - Brottfallin

1. gr.

2. ml. 1. mgr. 5. gr. breytist og orðast svo:

Eftir þann tíma takmarkast fjöldi þeirra við 25.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breyt­ingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 5. janúar 2012.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica