Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

34/2012

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Rauða torgi. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 26. janúar 2012 eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á Rauða torgi, á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1.  65°15,60´N - 011°31,00´V
2.  65°15,60´N - 011°07,00´V
3.  65°00,00´N - 011°07,00´V
4.  64°48,50´N - 011°15,50´V
5.  64°48,50´N - 011°34,50´V
6.  65°02,80´N - 011°26,20´V
7.  65°08,10´N - 011°26,50´V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 23. janúar 2012.

F. h. r.

Hrefna Karlsdóttir.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica