Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

57/2012

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 826, 6. september 2011, um loðnuveiðar íslenskra skipa á haust- og vetrarvertíð 2011 til 2012, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

2. mgr. 2. gr. orðist svo:

Leyfilegur heildarafli íslenskra loðnuskipa á vertíðinni er sem hér segir:

A

B

C

Lestir

Lestir

Lestir

553.539

7.362

546.177


  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (1,33%).
  3. Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands, með síðari breytingum, og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 26. janúar 2012.

Steingrímur J. Sigfússon.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica