Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

168/2012

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 353/2008 um setningu framkvæmdarreglna varðandi umsóknir um leyfi fyrir heilsufullyrðingum sem kveðið er á um í 15. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1924/2006.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2011 frá 1. nóvember 2011 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 353/2008 um setningu framkvæmdarreglna varðandi umsóknir um leyfi fyrir heilsufullyrðingum sem kveðið er á um í 15. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1924/2006.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 353/2008 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 2. febrúar 2012, bls. 146.

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. febrúar 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Indriði B. Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica