1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla í I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2007, frá 7. júlí 2007, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 141/2007, um kröfu varðandi samþykki, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 183/2005, fyrir starfsstöðvum fóðurfyrirtækja sem framleiða eða setja á markað aukefni í fóðri sem er í flokknum hníslalyf og vefsvipungalyf.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 141/2007 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
6. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. febrúar 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Indriði B. Ármannsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)