Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

213/2012

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 584/2008 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003 að því er varðar markmið Bandalagsins sem sett eru til að draga úr algengi Salmonella entertidis og Salmonella typhimurium í kalkúnum. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2010 frá 11. nóvember 2010 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 584/2008, um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2160/2003 að því er varðar markmið Bandalagsins sem sett eru til að draga úr algengi Salmonella entertidis og Salmonella typhimurium í kalkúnum.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 584/2008 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 7. janúar 2011, bls. 237.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 10. gr. laga nr. 96/1997 um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

6. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 22. febrúar 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Indriði B. Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica