Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

169/2011

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 126/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 197/2006 um bráðabirgðaráðstafanir samkvæmt reglugerð (EB) nr. 1774/2002 að því er varðar söfnun, flutning, meðferð, notkun og förgun á matvælum sem eru ekki lengur ætluð til neyslu.

1. gr. Innleiðing.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 832/2007 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 197/2006 að því er varðar notkun á matvælum sem eru ekki lengur ætluð til neyslu og framlengingu gildistíma bráðabirgðaráðstafana í tengslum við slík matvæli. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2010 frá 1. maí 2010.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 129/2009 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 197/2006 að því er varðar gildistíma bráðabirgðaráðstafana varðandi matvæli sem eru ekki lengur ætluð til neyslu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 27. janúar 2011, bls. 132.

2. gr. Fylgiskjal.

Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 832/2007 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur ekki til aukaafurða dýra er teljast til úrgangs enda gilda þá lög nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs.

Reglugerð þessi tekur ekki til sjávarspendýra.

4. gr. Eftirlit.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerða skv. 1. gr. vegna aukaafurða úr dýrum sé framfylgt í samræmi við lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lög nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir.

5. gr. Fiskimjöl og lýsi.

Verksmiðju, vinnslusvæði, búnað og áhöld sem notuð eru til framleiðslu fiskimjöls og lýsis, má ekki nota til framleiðslu úr öðru hráefni en sjávarafurðum.

6. gr. Þvingunarúrræði og viðurlög.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, lögum nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir eða lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

7. gr. Lagastoð.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 17. gr. a laga nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir.

8. gr. Gildistaka.

Reglugerðin öðlast þegar gildi. Þó taka efnisákvæði reglugerða framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr. er varða aukaafurðir úr landdýrum ekki gildi fyrr en 1. nóvember 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 8. febrúar 2011.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.