Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

361/2011

Reglugerð um strandveiðar fiskveiðiárið 2010/2011. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um strandveiðar, þar sem fenginn afli telst ekki til aflamarks eða krókaaflamarks, samkvæmt 6. gr. a í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

2. gr.

Í maí, júní, júlí og ágúst 2011 er, að fengnu leyfi Fiskistofu, heimilt að veiða á handfæri allt að 6.000 lestir samtals af óslægðum botnfiski, sem ekki reiknast til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra fiskiskipa sem stunda handfæraveiðar samkvæmt reglugerð þessari.

Fiskistofu er eingöngu heimilt að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða að fullnægðum ákvæðum 5. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða og er einungis heimilt að veita hverri útgerð, einstaklingi eða lögaðila, leyfi til strandveiða fyrir eitt fiskiskip. Þá er óheimilt að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða hafi aflamark í þorskígildum talið, umfram það aflamark sem flutt hefur verið til þess á sama fiskveiðiári, verið flutt af því. Eftir útgáfu leyfis til strandveiða er skipum óheimilt að flytja frá sér aflamark þess árs umfram það sem flutt hefur verið til skips.

Við útgáfu Fiskistofu á leyfi til fiskiskips til handfæraveiða samkvæmt reglugerð þessari falla úr gildi önnur leyfi þess til að stunda veiðar til loka fiskveiðiársins 2010/2011 sem gefin eru út með stoð í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Aflaheimildir skiptast á fjögur landsvæði með eftirfarandi hætti:

  1. Eyja- og Miklaholtshreppur - Súðavíkurhreppur. Í hlut þess koma alls 1.996 tonn sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 499 tonn í maí, 599 tonn í júní, 599 tonn í júlí og 299 tonn í ágúst.
  2. Strandabyggð - Grýtubakkahreppur. Í hlut þess koma alls 1.420 tonn sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 355 tonn í maí, 426 tonn í júní, 426 tonn í júlí og 213 tonn í ágúst.
  3. Þingeyjarsveit - Djúpavogshreppur. Í hlut þess koma alls 1.537 tonn sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 231 tonn í maí, 307 tonn í júní, 538 tonn í júlí og 461 tonn í ágúst.
  4. Sveitarfélagið Hornafjörður - Borgarbyggð. Í hlut þess koma alls 1.047 tonn sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 419 tonn í maí, 366 tonn í júní, 157 tonn í júlí og 105 tonn í ágúst.

Fiskistofu er eingöngu heimilt að veita skipi leyfi til strandveiða miðað við landsvæði þar sem útgerð skips á heimilisfesti samkvæmt þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra og skal öllum afla veiðiskips landað innan þess landsvæðis. Sama fiskiskipi verður aðeins veitt leyfi frá einu landsvæði á fiskveiðiárinu.

Náist ekki að veiða heimilaðan afla tiltekins landsvæðis í maí, júní eða júlí bætast ónýttar heimildir við aflaheimildir næsta mánuð á eftir. Fiskistofa fylgist með afla þessum og tilkynnir ráðuneytinu hvenær líklegt megi telja að viðmiðunarafla tímabils verði náð, sbr. 1. mgr. Ráðherra tilkynnir frá hvaða degi veiðar séu stöðvaðar á tilteknu svæði og skulu fiskiskip sem leyfi hafa á því svæði þá hætta veiðum.

4. gr.

Leyfi til handfæraveiða samkvæmt reglugerð þessari eru bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Óheimilt er að stunda veiðar föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Þá eru strand­veiðar bannaðar á uppstigningardag, annan í hvítasunnu og á frídegi verslunar­manna.
  2. Hver veiðiferð skal eigi standa lengur en 14 klukkustundir. Miðað er við þann tíma er fiskiskip lætur úr höfn til veiða til þess er það kemur til hafnar aftur til löndunar. Aðeins er heimilt að ljúka einni veiðiferð á hverjum degi. Nái bátur ekki af óviðráðanlegum ástæðum, s.s. vegna vélarbilunar, til hafnar innan 14 klukku­stunda frá upphafi veiðiferðar getur Fiskistofa þó, að fengnum skýringum útgerðar, fallist á að skilyrði þessa töluliðar séu uppfyllt.
  3. Skipstjóri skal tilkynna um upphaf veiðiferðar áður en lagt er úr höfn. Telst veiði­ferð hafin þegar tilkynning er send. Skipstjóri skal einnig tilkynna um lok hverrar veiðiferðar. Tilkynningar skal senda vaktstöð siglinga, um næstu strand­stöð, handvirkt um talstöð. Í tilkynningu skal ávallt koma fram úr hvaða höfn haldið er í veiðiferð og ennfremur í hvaða höfn afla er landað. Fiskiskip skal hafa um borð sjálfvirkan fjareftirlitsbúnað. Komi upp misræmi milli tilkynninga um upphaf og lok veiðiferðar og skráningar samkvæmt sjálfvirka fjareftirlits­búnaðinum getur Fiskistofa ákveðið að hin sjálfvirka skráning skuli lögð til grund­vallar við útreikning sóknar. Óheimilt er að fara í veiðiferð nema fjareftirlits­búnaður um borð sé virkur. Bili búnaður í veiðiferð, skal strax tilkynna það til Landhelgisgæslu og halda tafarlaust til hafnar til löndunar.
  4. Aldrei er heimilt að hafa fleiri en fjórar handfærarúllur um borð. Engin önnur veiðarfæri en handfærarúllur skulu vera um borð.
  5. Á hverju fiskiskipi er aðeins heimilt að draga 650 kg, í þorskígildum talið, af kvótabundnum tegundum, í hverri veiðiferð.
  6. Skylt er að landa öllum afla í lok hverrar veiðiferðar og skal hann veginn og skráður endanlega hér á landi.

5. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt VI. kafla laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæði 6. gr. a í lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 4. apríl 2011.

Jón Bjarnason.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica