Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

913/2010

Reglugerð um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og greiðslur til bænda verðlagsárið 2011. - Brottfallin

1. gr.

Heildargreiðslumark og greiðslumark lögbýla.

Heildargreiðslumark til framleiðslu mjólkur verðlagsárið 2011 skal vera 116 milljónir lítra og skiptist í greiðslumark lögbýla. Greiðslumark lögbýla reiknast í lítrum mjólkur og skiptist hlutfallslega milli lögbýla á sama hátt og greiðslumark til framleiðslu mjólkur á framleiðsluárinu 1. september 2009 til 31. desember 2010.

2. gr.

Aðilaskipti að greiðslumarki.

Um aðilaskipti að greiðslumarki fer samkvæmt reglugerð um markaðsfyrirkomulag við aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur á lögbýlum.

3. gr.

Nýting greiðslumarks.

Afurðastöð skal greiða framleiðanda lágmarksverð fyrir mjólk sem miðast við 1. flokks mjólk með skilgreindu efnainnihaldi. Fyrir aðra mjólk sem ekki stenst kröfur sem 1. flokks mjólk greiðir afurðastöð verð allt niður að leyfilegum afföllum frá verði 1. flokks mjólkur.

Greiðslutilhögun afurðastöðvar vegna framleiðslu umfram greiðslumark skal vera með þeim hætti að greiðslur vegna ónotaðs greiðslumarks skulu ganga hlutfallslega til annarra greiðslumarkshafa. Skal fyrst greitt fyrir fyrsta prósentustig sem greiðslumarkshafi framleiðir umfram eigið greiðslumark og síðan annað prósentustig og svo áfram eftir því sem ónotað greiðslumark gefur tilefni til.

Framleiðsla umfram greiðslumark skal fara á erlendan markað á ábyrgð hvers framleiðanda og viðkomandi afurðastöðvar. Framkvæmdanefnd búvörusamninga getur þó gefið skriflega heimild til sölu þessara vara innanlands ef heildarframleiðsla verður minni en sala og birgðastaða gefa tilefni til.

Öll mjólk sem seld er í afurðastöð frá viðkomandi lögbýli skal reiknast með í uppgjöri greiðslumarks fyrir lögbýlið.

Mjólk sem unnið er úr til sölu á sama lögbýli og framleiðsla fer fram telst til framleiðslu innan greiðslumarks.

Bændasamtök Íslands safna skýrslum um framleiðsluna.

4. gr.

Brottfall og geymsla greiðslumarks.

Greiðslumark lögbýla sem ekki hefur verið nýtt til framleiðslu að neinu leyti í full tvö verðlagsár (framleiðsluár) fellur niður, enda hafi Matvælastofnun tilkynnt eiganda lögbýlis um rétt til sölu eða geymslu greiðslumarksins. Heimilt er framleiðanda að leggja greiðslumark lögbýlisins inn til geymslu hjá Matvælastofnun, lengst til 31. desember 2014 og sætir það þá sömu breytingum og annað greiðslumark.

5. gr.

Beingreiðslur.

Beingreiðsla er framlag úr ríkissjóði til framleiðenda mjólkur og greiðist mánaðarlega úr ríkissjóði til handhafa beingreiðslna, sbr. 55. gr. laga nr. 99/1993. Beingreiðslur fyrir verðlagsárið 2011 skulu vera 4.940,6 milljónir kr. Dreifing beingreiðslna og fráviksmörk skulu vera með eftirfarandi hætti:

a)

47,67% beingreiðslna skal greiða greiðslumarkshöfum óháð framleiðslu, að því tilskildu að framleiðsla lögbýlisins sé a.m.k. 90% greiðslumarks á tímabilinu. Greiða skal 1. hvers mánaðar, 1/12 hluta, í fyrsta sinn 1. janúar 2011.

b)

35,45% beingreiðslna skal greiða greiðslumarkshöfum eftir framleiðslu allt að greiðslumarki hvers framleiðanda. Greiða skal 1. hvers mánaðar fyrir innlegg næstsíðasta mánaðar, í fyrsta sinn 1. mars 2011.

c)

16,88% beingreiðslna skal ráðstafa til greiðslumarkshafa, vegna framleiðslu innan greiðslumarks, eftir einstökum mánuðum, samkvæmt neðanfelldri töflu:



Janúar

0%

Febrúar

0%

Mars

0%

Apríl

0%

Maí

0%

Júní

0%

Júlí

10%

Ágúst

15%

September

15%

Október

20%

Nóvember

20%

Desember

20%

Að því marki sem beingreiðslur ganga ekki út eftir uppgjör innan greiðslumarks skal greitt samkvæmt stafliðum a og b að ofan hlutfallslega út á heildarframleiðslu umfram greiðslumark hvers lögbýlis í samræmi við 3. gr.

Verði mjólkurframleiðsla minni en sem nemur heildargreiðslumarki þannig að beingreiðslur ganga ekki út samkvæmt þessari reglu, skal ónotuðum beingreiðslum jafnað út á allt innvegið mjólkurinnlegg greiðslumarkshafa.

Framleiðendur geta einungis öðlast rétt til beingreiðslna fyrir mjólk sem framleidd er á því lögbýli sem greiðslumark fylgir innan þess framleiðslutímabils sem reglugerð þessi nær yfir.

Öll mjólk sem seld er í afurðastöð frá viðkomandi lögbýli og heimaunnin mjólk samkvæmt ákvæðum 3. gr. skal reiknast með í uppgjöri greiðslumarks fyrir lögbýlið.

6. gr.

Handhafar beingreiðslna.

Beingreiðslur greiðast ábúanda á lögbýli. Á hverju lögbýli skal aðeins einn framleiðandi vera skráður handhafi. Þó er heimilt, þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða sem standa að búinu, að skrá þá sérstaklega. Sjálfstæður rekstraraðili telst sá einn sem hefur sjálfstætt virðisaukaskattsuppgjör. Tilkynna skal Matvælastofnun allar breytingar á því hver eigi að vera handhafi beingreiðslna. Séu handhafar tveir eða fleiri, skal gefa upp hlutfallslega skiptingu beingreiðslna. Jafnframt skulu handhafar beingreiðslna tilgreina sérstakan reikning í bönkum eða öðrum viðskiptastofnunum, sem greiðslur skulu lagðar inn á.

7. gr.

Uppgjör beingreiðslna.

Sjái handhafi beingreiðslna fram á að nýting greiðslumarks gefi ekki rétt til 90% af beingreiðslum framleiðslutímabilsins, ber honum að tilkynna það Matvælastofnun, sem þá skal haga beingreiðslum í samræmi við áætlaða nýtingu. Komi samt fram við lok framleiðslutímabilsins, að ofgreitt hafi verið, ber handhafa beingreiðslna að endurgreiða mismuninn samkvæmt reikningi.

Afurðastöð skal senda Matvælastofnun tilkynningu um stöðvun mjólkurinnleggs, ef mjólkurinnlegg framleiðanda fellur niður í heilan mánuð eða lengri tíma.

8. gr.

Útreikningur á greiðslumarki lögbýla.

Matvælastofnun reiknar út greiðslumark til framleiðslu mjólkur og heldur skrá yfir greiðslumark lögbýla og handhafa réttar til beingreiðslna og lætur afurðastöðvum og búnaðarsamböndum í té eintak af henni fyrir starfssvæði þeirra. Matvælastofnun aflar upplýsinga og annast útreikninga vegna framkvæmdar þessarar reglugerðar og hefur eftirlit með uppgjöri afurðastöðva við framleiðendur. Afurðastöðvum og framleiðendum er skylt að láta Matvælastofnun í té allar þær upplýsingar sem að gagni geta komið við störf Matvælastofnunar og þau geta veitt.

9. gr.

Tilkynningar um greiðslumark lögbýla.

Matvælastofnun skal tilkynna framleiðendum um greiðslumark lögbýla. Framleiðendur eiga þess kost að gera athugasemdir við það og skulu þær berast Matvælastofnun innan 20 daga frá dagsetningu tilkynningar um greiðslumark, ella gildir það fyrir framleiðslutímabilið. Matvælastofnun endurskoðar útreikninga, sem athugasemdir eru gerðar við og tilkynnir framleiðanda niðurstöðu sína. Berist Matvælastofnun ekki athugasemdir við þá niðurstöðu innan 25 daga frá dagsetningu úrskurðarins, gildir hann fyrir hlutaðeigandi framleiðslutímabil. Uni viðkomandi framleiðandi ekki þeirri niðurstöðu, hefur hann rétt til að skjóta ágreiningnum með rökstuddri kæru til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sbr. 10. gr.

10. gr.

Kæruheimild.

Ágreiningi um ákvörðun á greiðslumarki lögbýlis, skráningu á greiðslumarki og rétt til beinna greiðslna, er heimilt að kæra til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

11. gr.

Ráðstöfun óframleiðslutengds og/eða minna markaðstruflandi stuðnings.

Óframleiðslutengdan og/eða minna markaðstruflandi stuðning að fjárhæð 143,4 milljónir kr. skal greiða í janúar 2011 til Bændasamtaka Íslands, sem annast úthlutun fjárins.

Ráðstöfun fjárins til einstakra verkefna skal vera sem hér segir:

a)

Kynbótaverkefni. 45,7 milljónum kr. skal varið til kynbótaverkefna.

b)

Ræktunarverkefni. 86,1 milljón kr. skal varið til gras- og grænfóðurræktar skv. reglum sem Bændasamtök Íslands setja.

c)

Þróunarfé. 11,6 milljónum kr. skal varið til rannsókna- og/eða þróunarverkefna í nautgriparækt.

12. gr.

Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

13. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi frá og með 1. janúar 2011 og gildir til 31. desember 2011.

Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 648/2009 um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og greiðslur til bænda frá 1. september 2009 til 31. desember 2010.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 15. nóvember 2010.

Jón Bjarnason.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica