Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

9/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 888/2010 um loðnuveiðar íslenskra skipa á vetrarvertíð 2011. - Brottfallin

1. gr.

1. mgr. 4. gr. orðast svo:

Aðeins er heimilt að stunda loðnuveiðar með flotvörpu innan svæðis sem afmarkast af línum sem dregnar eru milli eftirfarandi punkta:

  1. 67° 11´ N - 014° 30´ V
  2. 68° 00´ N - 014° 30´ V
  3. 68° 00´ N - 008° 30´ V
  4. 65° 15´ N - 008° 30´ V
  5. 65° 15´ N - 011° 20´ V
  6. 66° 05´ N - 011° 30´ V
  7. 66° 15´ N - 012° 00´ V
  8. 66° 12´ N - 012° 22´ V
  9. 66° 40´ N - 012° 40´ V
  10. 66° 47´ N - 013° 00´ V
  11. 66° 52´ N - 013° 08´ V
  12. 67° 11´ N - 014° 30´ V

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. janúar 2011.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Hrefna Karlsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica