Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

729/2010

Reglugerð um gildistöku tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/41/EB um niðurfellingu tiltekinna tilskipana sem varða hollustuhætti matvæla og afurða úr dýraríkinu.

1. gr. Innleiðing.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 137/2007, frá 1. maí 2010, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/41/EB um niðurfellingu tiltekinna tilskipana sem varða hollustuhætti í tengslum við matvæli og heilbrigðisskilyrði við framleiðslu og markaðssetningu tiltekinna afurða úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis og um breytingu á tilskipunum ráðsins 89/662/EBE og 92/118/EBE og ákvörðun ráðsins 95/408/EB. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52, 24. september 2010, bls. 399.

2. gr. Þvingunarúrræði og viðurlög.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, 30. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 12. gr. laga um varnir gegn fisksjúkdómum eða lögum nr. 55/1998 um sjávarafurðir.

3. gr. Lagastoð.

Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 29. gr. a laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 11. gr. laga um varnir gegn fisksjúkdómum, 17. gr. a laga nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir og 31. gr. laga nr. 55/1998 um sjávarafurðir.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerðin öðlast þegar gildi. Þó taka efnisákvæði þessarar reglugerðar ekki til kjöts, mjólkur, eggja og hrárra afurða úr þessum matvælategundum fyrr en 1. nóvember 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. september 2010.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.