Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

490/2010

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 549, 25. júní 2009, um leyfisskyldar frístundaveiðar, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

1. tl. 1. mgr. 3. gr. orðist svo:

  1. Leyfi til að veiða tiltekinn fjölda fiska af kvótabundnum fisktegundum á hvert handfæri eða sjóstöng dag hvern og reiknast sá afli ekki til aflamarks viðkomandi báts. Um borð í báti sem tekur færri en 20 farþega er heimilt að hafa allt að 7 sjóstangir eða handfæri samtímis enda fari heildarafli fiska af kvótabundnum fisktegundum ekki yfir 49 fiska dag hvern. Um borð í báti sem tekur farþega á bilinu 20 - 49 er heimilt að hafa allt að 15 sjóstangir eða handfæri samtímis enda fari heildarfjöldi fiska af kvótabundnum fisktegundum ekki yfir 60 fiska dag hvern. Þá er um borð í báti sem tekur 50 farþega eða fleiri heimilt að hafa allt að 25 sjóstangir eða handfæri samtímis enda fari heildarfjöldi fiska af kvótabundnum fisktegundum ekki yfir 75 fiska dag hvern. Óheimilt er að selja eða fénýta á annan hátt afla sem fæst við veiðar samkvæmt leyfi þessu.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 6. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 3. júní 2010.

F. h. r.

Steinar I. Matthíasson.

Hrefna Gísladóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica