Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

381/2010

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 285, 31. mars 2010, um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2010. - Brottfallin

1. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 2. gr.:

  1. Í stað orðanna "30. apríl 2010" í 3. tl. 1. mgr. koma orðin: 7. maí 2010.
  2. Í stað orðanna "15. júlí 2010" í lokamálsgreininni koma orðin: 10. ágúst 2010.
  3. Í stað orðanna "20. ágúst 2010" í lokamálsgreininni koma orðin: 10. september 2010.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. apríl 2010.

F. h. r.

Steinar I. Matthíasson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica