Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

1006/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 557, 6. júní 2007, um afladagbækur. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

Felld brott með:

1. gr.

1. mgr. 12. gr. orðist svo:

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 3. gr. er skipstjórum allra skipa heimilt að halda afladagbók á bókarformi til 31. mars 2010.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. desember 2009.

F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica