Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

814/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 3, 6. janúar 2009, um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum árið 2009. - Brottfallin

1. gr.

Lokamálsgrein 3. gr. orðist svo:

Við veiðarnar skal makrílafli ekki fara yfir 20% af heildarafla hvers skips fyrir tímabilið 9. júlí til og með 30. september 2009. Á tímabilinu frá 1. október til og með 31. desember 2009 skal makrílafli ekki fara yfir 4% af heildarafla hvers skips. Heimilt er að flytja meðafla­heimild milli skipa.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fisk­veiði­landhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fisk­veiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. september 2009.

F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica