Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

647/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 3, 6. janúar 2009, um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum árið 2009. - Brottfallin

1. gr.

Lokamálsgrein 2. gr. orðist svo:

Allar veiðar sunnan við 64°00' N eru bannaðar.

2. gr.

Lokamálsgrein 3. gr. orðist svo:

Við veiðarnar skal makrílafli ekki fara yfir 12% af heildarafla hvers skips fyrir tímabilið frá 9. júlí til og með 15. september 2009.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fisk­veiði­land­helgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fisk­veiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftir­breytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 21. júlí 2009.

F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica