Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

94/2010

Reglugerð um bann við dragnótaveiðum í Eyrarbakkabug. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 7. febrúar 2010 eru allar dragnótaveiðar bannaðar á svæði í Eyrarbakkabug, sem markast af línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1.  63°46,33´ N - 20°47,40´ V
2.  63°43,64´ N - 20°50,18´ V
3.  63°46,95´ N - 21°01,72´ V
4.  63°48,90´ N - 21°21,55´ V
5.  63°50,60´ N - 21°23,50´ V

Að norðan markast svæðið af fjöruborði lands.

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 5. febrúar 2010.

F. h. r.

Steinar Ingi Matthíasson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica