Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

110/2010

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum í Faxaflóa. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 14. febrúar 2010, eru allar veiðar á sæbjúgum bannaðar á svæði í Faxaflóa sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1.  64° 08, 91´ N - 22° 39, 70´ V
2.  64° 10, 42´ N - 22° 36, 87´ V
3.  64° 09, 28´ N - 22° 32, 62´ V
4.  64° 07, 98´ N - 22° 35, 96´ V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands,með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 12. febrúar 2010.

F. h. r.

Steinar Ingi Matthíasson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica