Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

128/2010

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1304/2003 um þá málsmeðferð sem Matvælaöryggisstofnun Evrópu skal nota þegar beiðnum um vísindalegar álitsgerðir er vísað til hennar.

1. gr. Innleiðing.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 27. október 2007, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1304/2003 um þá málsmeðferð sem Matvælaöryggisstofnun Evrópu skal nota þegar beiðnum um vísindalegar álitsgerðir er vísað til hennar.

2. gr. Fylgiskjal.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr. Eftirlit.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt vegna matvæla í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt vegna fóðurs í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr. Lagastoð.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerðin öðlast gildi 1. mars 2010.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 4. febrúar 2010.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.