Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

925/2008

Reglugerð um markaðssetningu ungbarnablandna úr tilteknum mysupróteinum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 41/2007 frá 28. apríl 2007 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1609/2006 frá 27. október 2006 um leyfi til að setja ungbarnablöndur, sem eru að stofni til úr vatnsrofsefnum mysupróteina úr kúamjólk, á markað í tvö ár.

2. gr.

Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Leyfilegt er að markaðssetja ungbarnablöndur, sem eru að stofni til úr vatnsrofsefnum mysupróteina úr kúamjólk, ef það er gert í samræmi við viðauka reglugerðar (EB) nr. 1609/2006.

Viðauki reglugerðar (EB) nr. 1609/2006 bætist við 2. tölulið I. viðauka reglugerðar nr. 735/1997 um ungbarnablöndur og stoðblöndur. Í samræmi við 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 1609/2006 er um tímabundna breytingu á 2. tölulið I. viðauka að ræða.

4. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar, sbr. 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, hafa eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt hvað varðar matvæli.

5. gr.

Með brot gegn reglugerð þessari skal farið samkvæmt lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 23. september 2008.

F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.