Samgönguráðuneyti

1047/2007

Reglugerð um breytingu á reglugerð um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði nr. 206/2007. - Brottfallin

1. gr.

Eftirfarandi breytingar skulu gerðar á fylgiskjali I við reglugerð um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði nr. 206/2007.

Þriðja málsgrein 3. gr. skal orðast svo:

3. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr., skal áframhaldandi lofthæfi loftfara sem hafa flugleyfi tryggt á grundvelli viðvarandi ráðstafana sem skilgreint er í flugleyfi og getið er í viðauka (21. hluta 21) við fylgiskjal I við reglugerð um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslu­fyrirtækja nr. 205/2007 með síðari breytingum (innleiðing reglugerðar framkvæmda­stjórnarinnar (EB) nr. 1702/2003 sama efnis).

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 376/2007 frá 30. mars 2007 um breytingu á reglugerð nr. 2042/2003 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 90/2007 frá 6. júlí 2007; með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 22. október 2007.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica