Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

440/2008

Reglugerð um hvaða atriði skulu talin fram undir einstökum liðum á eyðublöðum fyrir bókhaldsyfirlit yfir útgjöld vegna samgöngumannvirkja í 1. viðauka við reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1108/70.

1. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 851/2006 frá 9. júní 2006 um hvaða atriði skulu talin fram undir einstökum liðum á eyðublöðum fyrir bókhaldsyfirlit í 1. viðauka við reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1108/70 (kerfisbundin útgáfa), sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 23/2007 frá 27. apríl 2007, sem birtist í 38. viðauka við EES-samninginn 9. ágúst 2007, bls. 28, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessar.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 17. gr. vegalaga nr. 80/2007 og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 25. apríl 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.