Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

1190/2005

Hafnarreglugerð fyrir Hafnir Ísafjarðarbæjar.

1. gr. Stærð og takmörk hafnarinnar.

Hafnir Hafna Ísafjarðarbæjar eru eftirtaldar hafnaraðstöður:

Ísafirði: Bátahöfn, Ásgeirsbakki, við dráttarbraut, Sundahöfn, Harðviðarbryggja, Olsenbryggja, staura flotbryggja, og flotbryggjur fyrir farþega- og skemmtibáta.
Suðureyri: Löndunarbryggja og flotbryggja fyrir fiskibáta.
Flateyri: Löndunarbryggja og flotbryggja fyrir fiskibáta.
Þingeyri: Löndunarbryggja, hafskipabryggja og flotbryggja fyrir fiskibáta.

Einnig eru á starfssvæði Hafna Ísafjarðarbæjar bryggjurnar í Bæjum ferjubryggja, Æðey ferjubryggja, Mjólká ferjubryggja, Gemlufallsbryggja ferjubryggja, Hnífsdalsbryggja og bryggjan í Holti í Önundarfirði.

Stærð og takmörk hafnarsvæðis fyrir Ísafjarðarbæ eru:

Á sjó: Lína dregin úr Skarfaskeri á Óshlíð í Arnarnesvita lína þessi afmarkar Skutulsfjörð og telst svæðið innan hennar vera hafnarsvæði Ísafjarðarhafnar.
Á landi: Í samræmi við aðalskipulag fyrir Ísafjarðarbæ á hverjum tíma.

Stærð og takmörk hafnarsvæðis fyrir Suðureyrarhöfn eru:

Á sjó: Innan við línu dregna frá Brjót í Norðureyri.
Á landi: Í samræmi við aðalskipulag fyrir Suðureyri á hverjum tíma.

Stærð og takmörk hafnarsvæðis fyrir Flateyrarhöfn eru:

Á sjó: Að norðan af línu sem dregin er þvert fyrir fjörðin út Ytri bót.
Á landi: Í samræmi við aðalskipulag fyrir Flateyri á hverjum tíma.

Stærð og takmörk hafnarsvæðis fyrir Þingeyrarhöfn eru:

Á sjó: Lína dregin frá Oddatá á Þingeyrarodda í Gemlufallsá handan fjarðarins.
Á landi: Í samræmi við aðalskipulag fyrir Þingeyri á hverjum tíma.

Lega hafnarsvæða er einnig sýnd á viðfestum kortum sem eru hluti af reglugerð þessari.

Landsvæði hafnanna skiptast í:
- Hafnarbakka og bryggjur.
- Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði.
- Götur.
- Lóðir, iðnaðar- og baksvæði.

2. gr. Stjórn hafnarinnar.

Ísafjarðarbær, er eigandi Hafna Ísafjarðarbæjar. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar fer með yfirstjórn hafnamála, en framkvæmdastjórn skal falin hafnarstjórn og hafnarstjóra.

Hafnarstjórn er kjörin af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar skv. þeim reglum er gilda um kjör fastra nefnda bæjarstjórnar. Hafnarstjórn skipa 5 fulltrúar og 5 til vara og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar.

Stjórn Hafna Ísafjarðarbæjar kýs sér formann úr hópi kjörinna hafnarstjórnarmanna. Hafnarstjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Auk hinna kjörnu fulltrúa skal hafnarstjóri sitja fundi hafnarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt.

3. gr. Starfs- og valdsvið hafnarstjórnar.

Hafnarstjórn hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnarinnar. Leita skal staðfestingar sveitarstjórnar á fjárhagsáætlun hafnarsjóðs svo og lántökum hafnarsjóðs lengur en yfirstandandi fjárhagsár.

Hafnarstjórn hefur ákvörðunarvald um rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu, þ.m.t. leiga á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar.

Hafnarstjórn veitir leyfi til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæðis fyrir starfsemi sem hún telur torvelda eðlilegri hafnarstarfsemi.

Hafnarstjórn gerir tillögur til sveitarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðinu, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulagsnefndar. Byggingamál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar áður en þau eru lögð fyrir sveitarstjórn.

4. gr. Starfs- og valdsvið hafnarstjóra.

Hafnarstjóri er ráðinn af hafnarstjórn og fer hann með daglega stjórn hafnanna í umboði hafnarstjórnar. Hafnarstjóri undirbýr mál sem leggja á fyrir hafnarstjórn, veitir viðtöku erindum til hennar og sér um framkvæmd samþykkta hafnarstjórnar. Hann veitir hafnarstjórn upplýsingar um málefni hafnarinnar. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs. Hann er yfirmaður allra starfsmanna hafnarinnar og sér um ráðningu þeirra og uppsögn.

Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnareglugerða, auk reglugerðar þessarar og fara að öðru leyti eftir samþykktum hafnarstjórnar.

Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu á öllum hafnarsvæðum hvort sem er á sjó eða landi. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans, eða þeirra sem hann felur störf við eftirlit og aðgæslu.

5. gr. Um aðra starfsmenn hafnarinnar.

Starfsmenn hafnarinnar sem hafa umsjón með eignum hafnarinnar, gæta reglu og sinna skipaþjónustu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar.

Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi en skipunum starfsmanna ber að hlýða þegar í stað. Telji einhver sig órétti beittan af hálfu starfsmanna samlagsins getur hann kært það til hafnarstjórnar.

6. gr. Hafnsaga og önnur þjónusta við skip.

Öllum skipum sem koma til Ísafjarðar ber að taka hafnsögumann þar sem undantekningarlaust er hafnsöguskylda. Hafnarstjórn getur þó gefið undanþágu frá því sé viðkomandi skipstjóri kunnugur staðháttum og kemur eigi sjaldnar en 12 sinnum á ári til hafnarinnar.

Sérhvert skip, sem ætlar til Ísafjarðar eða einhverrar af öðrum höfnum Hafna Ísafjarðarbæjar og óskar eftir hafnsögu skal gera boð um það til hafnsögumanns með minnst 4ja klst. fyrirvara. Er hafnsögumanni skylt að fara til móts við skipið allt að 1 sjómílu út fyrir ystu mörk viðkomandi hafnar, ef skipstjóri æskir þess.

Hafnsögumaður vísar skipinu leið til hafnar og má eigi yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er komið í viðlegu. Heimilt er hafnsögumanni meðan hann hefur ekki lokið starfi sínu að banna hverjum þeim sem ekki á lögmætt erindi að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð ber skipinu að sjá honum fyrir fæði.

Undanþága frá hafnsögu skuldbindur viðkomandi skipstjóra til að hafa náið talstöðvarsamband við hafnsögumenn og hlíta í einu og öllu fyrirmælum þeirra, ella má svipta þá undanþágunni fyrirvaralaust. Óheimilt er að binda skip annars staðar en þar sem starfsmenn hafnarinnar vísa til.

Hafnarstjóri getur veitt undanþágu frá hafnsöguskyldu ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

Höfnin veitir, eftir atvikum, aðstoð dráttarbáts, sér um bindingu skipa, sölu og afgreiðslu vatns og rafmagns. Hafnsögumaður ákveður notkun báta og mannafla eftir aðstæðum hverju sinni.

Dráttarbátur hafnarinnar er í þjónustu og á ábyrgð þess skips, er þeir aðstoða, frá því þeir taka við taug, eða fyrirmælum stjórnanda skipsins, er aðstoðar nýtur, og þar til taug er sleppt eða fyrirmæli gefin um að aðstoð sé lokið. Hafnsögumaður skal vera í skipi, er það nýtur aðstoðar dráttarbáts.

7. gr. Um hafnagjöld.

Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrám er settar skulu í samræmi við ákvæði gildandi hafnalaga, laga um siglingavernd og þjónustugjaldskrá sem hafnarstjórn setur.

8. gr. Löggæsla á hafnarsvæðum.

Lögreglan á Ísafirði hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðum Hafna Ísafjarðarbæjar.

Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga á hafnarsvæði er bannað að dvelja þar ef þeir með því tálma lestun, losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers konar ökutækja og ónauðsynlega umferð gangandi fólks um bryggjur, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði á hafnarsvæðum. Fólk sem fer um hafnarsvæði er þar ávallt á eigin áhættu og ábyrgð.

Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæði án leyfis.

Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðum án leyfis hafnarstjóra. Fiskveiðar á hafnarsvæðum mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á eðlilegar siglingaleiðir innan hafnarmarka og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri bótalaust.

Hafnarstjóra skal þegar í stað tilkynnt um það sem bjargað er úr höfnum bæjarins en hann gefur lögreglunni skýrslu, telji hann þess þörf.

9. gr. Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það, að áliti hafnarstjóra, tálmar greiðri notkun hafnar, skal það fært burtu svo fljótt sem auðið er af eiganda, umráðamanni eða öðrum sem málið varðar. Verði dráttur á því, má hafnarstjóri láta færa skipið burt á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og skal það flutt á öruggan stað, að vali og eftir mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi skip, til lúkningar á kostnaði, á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja skipið tafarlaust. Sala fari fram á kostnað og ábyrgð eiganda og/eða umráðamanns skips.

Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjóra.

Ef skip, bátar, bryggjur, flutningstæki á landi eða annar búnaður, í eigu annarra en hafnarinnar, er í hirðuleysi á hafnarsvæði og/eða veldur óþrifnaði eða hættu, þá skal hafnarstjóri fyrirskipa eiganda og/eða umráðamanni að gera nauðsynlegar úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hlut á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og koma fyrir í geymslu á öruggum stað, eftir vali og mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi hlut á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, til lúkningar á kostnaði, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja hlutinn tafarlaust. Sala fari fram á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns.

10. gr. Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

Engum úrgangi eða rusli má kasta í höfnina eða ytri höfn hennar.

Bannaður er hvers konar hvalskurður í eða við höfnina. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt, inn í hafnir, hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfnunum nema leyfi hafnarstjóra komi til.

Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í hafnirnar olíu, lýsi, olíusora eða öðru sem valdið getur mengun.

Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir til að eldsneyti renni ekki í sjóinn af þilfari ef óhapp verður við eldsneytistökuna. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa, að mati hafnarstarfsmanna, gert forsvaranlegar ráðstafanir til varnar mengun.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma.

11. gr. Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

Allir þeir sem óska eftir afgreiðslu fyrir skip, láni á tækjum eða þjónustu á einn eða annan hátt hjá höfninni, skulu snúa sér beint til starfsmanna hafnarinnar með beiðni þar að lútandi.

Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða þjónustu, sem eru í vanskilum með gjöld til hafnar og hafa ekki sinnt ítrekuðum áskorunum hafnarinnar um greiðslu gjaldfallinna gjalda. Í slíkri áskorun skal geta um þær afleiðingar af vanskilum sem koma fram í 1. málslið greinarinnar.

12. gr. Hverjum gefa skal fyrirmæli.

Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skulu gefin skipstjóra en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi. Ef stýrimaður er einnig fjarverandi má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipanir og er það jafngilt sem skipstjóri hefði sjálfur tekið við skipunum.

13. gr. Um skaðabótaskyldu.

Um skaðabótaskyldu þeirra sem leið eiga um hafnir og hafnsvæði Ísafjarðarbæjar, vegna skemmda á höfn, mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum skaðabótareglum.

Ef ekki næst samkomulag um fjárhæð skaðabóta skulu þær ákveðnar með mati tveggja dómkvaddra matsmanna, sem dómkvaddir eru af héraðsdómi Vestfjarða. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að óska dómkvaðningar samkvæmt þessari grein. Kostnaður af mati greiðist að jöfnu.

Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, innan mánaðar frá því matsgerð samkvæmt 2. mgr. liggur fyrir og hefur verið kynnt aðilum. Til yfirmats skal dómkveðja þrjá matsmenn. Kostnaður við yfirmat greiðist af þeim sem þess krafðist, nema það sé honum í vil, þá skal kostnaður greiðast að jöfnu.

Niðurstaða dómkvaddra matsmanna, hvort sem er samkvæmt 2. eða 3. mgr. skal vera endanleg niðurstaða um bótafjárhæð.

14. gr. Kæruheimild.

Notendum Hafna Ísafjarðarbæjar er heimilt að skjóta ákvörðunum hafnarstjórnar samkvæmt reglugerð þessari, öðrum en gjaldskrárákvörðunum, til Siglingastofnunar Íslands. Ákvörðunum Siglingastofnunar má skjóta til samgönguráðherra. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.

15. gr. Brot.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Um mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.

16. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003 og 17. gr. laga nr. 417/2003 um vaktstöð siglinga, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt falla úr gildi hafnarreglugerðir fyrir Ísafjarðarkaupstað nr. 56/1989, Suðureyrarhrepp nr. 124/1973, Flateyrarhrepp nr. 77/1947 og Þingeyrarkauptún nr. 178/1976.

Samgönguráðuneytinu, 20. desember 2005.

Sturla Böðvarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.