Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. sept. 2007

780/2006

Reglugerð um fis.

1. gr. Orðskýringar.

Fis (microlight) er loftfar sem hefur ekki fleiri en tvö sæti og hefur ofrishraða í lendingarham (VSO) að hámarki 35 hnúta (65 km/klst.) sýndan hraða leiðréttan (CAS) og:

sem landfis (landplane) með einu sæti og tómaþunga ekki hærri en 210 kg og hámarksflugtaksmassa ekki hærri en 300 kg eða
sem landfis með tveimur sætum og tómaþunga ekki hærri en 300 kg og hámarksflugtaksmassa ekki hærri en 450 kg eða
sem láðs og lagar fis (amphibian) eða fis á flotum (floatplane) með einu sæti og tómaþunga sem er ekki hærri en 240 kg og hámarksflugtaksmassa sem er ekki hærri en 330 kg eða
sem láðs og lagarfis eða fis á flotum með tveimur sætum og tómaþunga sem er ekki hærri en 345 kg og hámarksflugtaksmassa sem er ekki hærri en 495 kg, að því tilskyldu að hægt sé að nota fisið bæði sem fis á flotum og sem landfis þannig að það sé innan marka beggja flokka hvað varðar hámarksflugtaksmassa, eins og við á.

Heimilt er að draga þyngd neyðarbúnaðar frá ofangreindum viðmiðunarþyngdum að því tilskyldu að hámarksflugtaksmassi verði aldrei meiri en sá hámarksflugtaksmassi sem framleiðandi loftfars gefur upp fyrir loftfarið. Neyðarbúnaður telst vera: neyðarfallhlíf, slökkvitæki, björgunarvesti, sjúkrakassi, neyðarsendir, neyðarteppi og aukatalstöð.

Sýnt skal fram á að gerðir hafi verið jafnvægisútreikningar vegna ísetningar alls búnaðar.

Hreyfillaust loftfar sem er léttara en 70 kg telst til fisa án hreyfils. Hreyfilknúið loftfar sem er léttara en 70 kg og flugtak er af fæti telst til fisa án hreyfils. Fallhlífar (parachutes) teljast ekki til fisa.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi skal gilda um allt fisflug á Íslandi innan íslenskrar lofthelgi.

3. gr. Starfræksla.

Til þess að starfrækja fis innan íslenskrar lofthelgi skal stjórnandi hreyfilknúsins fiss hafa:

  1. heimild flugmálastjórnar Íslands til starfrækslu og skal skrá hreyfilknúið fis í fisskrá flugmálastjórnar eða
  2. heimild viðurkennds fisfélags og skrá hreyfilknúið fis í fisskrá slíks félags.

Þó skal Flugmálastjórn Íslands vera heimilt að gefa út tímabundið leyfi, að hámarki til 90 daga, til erlends aðila, enda hafi hann hlotið sambærilega þjálfun, að mati Flugmálastjórnar, og íslenskur fisflugmaður.

Flug erlendra hreyfilknúinna fisa innan íslenskrar lofthelgi skal einungis heimilt samkvæmt fyrirfram leyfi Flugmálastjórnar Íslands. Slíkt leyfi er einungis veitt ef fis uppfyllir skilyrði 7., 8., 9. og 11. gr. reglugerðar þessarar og lögbundnar vátryggingar eru fyrir hendi.

4. gr. Viðurkennd fisfélög.

Fisfélög skulu ekki rekin í hagnaðarskyni. Aðild að fisfélagi skal opin einstaklingum sem vilja eiga eða starfrækja fis og uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í samþykktum félagsins eða samtakanna.

Sækja skal um viðurkenningu fisfélags til Flugmálastjórnar Íslands. Í umsókn skal greina nákvæmar upplýsingar um eftirgreind atriði:

  1. Nafn umsækjanda, heimilisfang, kennitala og símanúmer.
  2. Þjóðerni umsækjanda, félagaform og nöfn stjórnenda. Sé um hlutafélag að ræða skal greina hluti og nöfn stjórnarmanna. Sé eignaraðild að hluta erlend skal sérstök grein gerð fyrir henni. Einnig skal gerð grein fyrir hverskonar atvinnurekstri sem umsækjandi kann að hafa með hendi.
  3. Skipulag fyrirhugaðrar fisflugskennslu, skráningu fisa og innra eftirlit og gerð skal grein fyrir hæfni tilnefnds þjálfunar- og tæknistjóra, flugkennara, og skoðunarmanna til að taka þessi störf að sér.
  4. Stofnreglur félagsins og/eða félagssamþykktir.
  5. Gera skal grein fyrir þeim fisum sem nota skal við kennslu og eigna- eða umráðarétti þeirra.

Með umsókn skulu ennfremur eftirfarandi gögn fylgja:

  1. Handbók flugkennslu- og þjálfunar sem ennfremur skal háð samþykki Flugmálastjórnar. Flugkennslu- og þjálfunarhandbók skal lýsa eftirfarandi:

    1. skipulagi við skráningu hreyfilknúins fiss og útgáfu flughæfnisskírteinis og skoðanir og eftirlit;
    2. skipulagi kennslu og þjálfunar;
    3. starfsreglum við samþykkt kennara og prófdómenda;
    4. starfsreglum við samþykkt skoðunarmanna;
    5. öðrum starfsreglum sem fylgja skulu.
  2. Staðfesting á lögbundnum vátryggingum.
  3. Tilnefning þjálfunar- og tæknistjóra sem ábyrgð ber á kennslu, prófum, skráningu, eftirliti og skoðunum fisa. Tilnefning er háð samþykki Flugmálastjórnar Íslands og telst þjálfunar- og tæknistjóri sérstakur trúnaðarmaður stofnunarinnar til starfrækslu viðurkennds fisfélags.

5. gr. Viðurkenning.

Þegar umsókn ásamt öllum þeim gögnum sem krafist er að fylgi berast Flugmálastjórn fer stofnunin yfir hana og gerir úttekt á væntanlegri starfsemi. Viðurkenningu Flugmálastjórnar má binda þeim takmörkunum sem Flugmálastjórn telur nauðsynleg hverju sinni. Telji Flugmálastjórn að forsendur bresti til viðurkenningar á trúnaðarmanni og/eða starfsemi félagsins að einhverju leyti er Flugmálastjórn heimilt að afturkalla viðurkenningu sína til bráðabirgða eða að öllu leyti telji það grundvöll starfrækslu félags eða samtaka brostinn að verulegu leyti.

6. gr. Skráning fisa.

Öll hreyfilknúin fis sem starfrækt eru innan íslenskrar lofthelgi skulu skráð í fisskrá Flugmálastjórnar Íslands eða fisskrá viðurkennds fisfélags. Skrásetja skal hreyfilknúin fis samkvæmt skriflegri umsókn eiganda þess. Umsókn skal geyma skýrslur sem nauðsynlegar eru til skrásetningar, þ.m.t. viðhaldsáætlun, og henni skulu fylgja skilríki fyri rþví að umsækjandi sé eigandi fissins, hvernær og af hverjum það er smíðað ásamt gögnum um flughæfni fiss og yfirlýsingu um lögbundnar vátryggingar.

Hreyfilknúið fis skal bera fast skrásetningarmerki. Skrásetningarmerki fisfélaga er úthlutað af Flugmálstjórn Íslands. Fylgja skal reglum um þjóðernis- og skrásetningarmerki íslenskra loftfara, sbr. auglýsingu nr. 176/1983, við skrásetningu og merkingu fisa eins og við á.

7. gr. Flughæfni fisa.

Aðeins má starfrækja hreyfilknúið fis sem hefur gilt flughæfnisskírteini. Gildistími flughæfnisskírteinis skal að hámarki vera 1. ár.

Við umsókn flughæfnisskírteinis skulu eftirfarandi upplýsingar fylgja:

  1. Skýrsla skoðunarmanns á fisinu.
  2. Greinargóð lýsing á fisinu.

Flughæfnisskírteini fellur úr gildi þegar:

  1. Eigendaskipti verða á fisinu.
  2. Fisið skemmist eða bilar verulega.
  3. Fisinu er breytt eða eiginleikum þess breytt.
  4. Ef Flugmálastjórn Íslands eða viðurkennt fisfélag kveður á um að fisið sé ekki lengur öryggt til starfrækslu.
  5. Ef lögbundnar vátryggingar falla úr gildi.
  6. Ef fisinu hefur ekki verið haldið við skv. viðhaldsáætlun.

Flugmálastjórn Íslands eða fisfélagi skal heimilt að setja sérstök skilyrði um starfrækslu fiss í flughæfnisskírteini fissins.

8. gr. Lágmarksbúnaður fisa.

Hreyfilknúin fis skulu hafa lágmarksbúnað framleiðanda samkvæmt handbók fiss, tilmælum framleiðanda eða öðrum gögnum. Hreyfilknúin fis skulu sérstaklega merkt á áberandi stað með eftirfarandi texta: ÞETTA LOFTFAR UPPFYLLIR EKKI SKILYRÐI LOFTHÆFIS. Skilti þetta skal staðsett á áberandi stað fyrir stjórnanda fiss og farþega.

9. gr. Viðhald fisa.

Eigandi eða umráðamaður fiss er ábyrgur fyrir viðhaldi fiss og flughæfni þess samkvæmt reglugerð þessari og nánari fyrirmælum viðurkennds fisfélags sem hann er aðili að.

Flugmálastjórn Íslands eða aðili sem stofnunin tilnefnir eða viðurkennt fisfélag hefur eftirlit með því að skráð hreyfilknúin fis séu flughæf og annast eftirlit og skoðun eftir því sem þörf krefur. Flugmálastjórn Íslands skal ætíð heimill aðgangur að fisi, viðhaldsaðstöðu þess og viðurkenndu fisfélagi eða samtökum til að rannsaka fis og skjöl er það varðar.

Hver sá sem á eða notar fis skal sanna að fisið uppfylli kröfur þessarar reglugerðar, sé þess krafist.

10. gr. Upplýsingagjöf og kæruréttur.

Upplýsingar um allar ákvarðanir viðurkennds fisfélags varðandi skráningu fisa, flughæfni fisa, niðurstöður í lok þjálfunar og prófa til fisflugmannsskírteinis, kennararéttinda, prófdómenda og skoðunarmanna, viðhald og niðurstöður skoðana, skulu afhentar Flugmálastjórn Íslands svo fljótt sem auðið er.

Allar ákvarðanir viðurkennds fisfélags samkvæmt 1. mgr. er heimilt að leggja til úrskurðar Flugmálastjórnar Íslands skv. ákvæðum stjórnsýslulaga.

11. gr. Takmarkanir á fisflugi.

Fis skal einungis ætlað eða notað til skemmtunar eða íþrótta. Óheimilt er að fljúga fisi í atvinnuskyni, til flutninga- og verkflugs, né til annarra starfa nema kennslu og þjálfunar og próftöku. Óheimilt er að fljúga fisi með hættulegan varning.

12. gr. Refsing.

Brot á reglugerð þessari varða refsingu samkvæmt 141. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir ásamt síðari breytingum.

13. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með vísan til 145. gr., laga nr. 60 10. júní 1998 um loftferðir með síðari breytingum, kemur í stað reglugerðar 580/2001 um fis. Reglugerðin tekur strax gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.