Samgönguráðuneyti

586/2006

Reglugerð um breytingu á reglugerð um flugvernd nr. 361/2005. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

Felld brott með:

1. gr.

Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að innleiða reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar um breytingu á reglugerð (EB) nr. 622/2003 um ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnreglum um flugvernd.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EESsamningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 781/2005 frá 24. maí 2005 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 622/2003 um ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnreglum um flugvernd, merkt fylgiskjal IX, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 151/2005 frá 23. febrúar 2005.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 857/2005 frá 6. júní 2005 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 622/2003 um ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnreglum um flugvernd, merkt fylgiskjal X, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 151/2005 frá 23. febrúar 2005.

Reglugerðirnar eru birtar sem fylgiskjöl með reglugerð þessari.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr., 4. mgr. 78. gr. sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 26. júní 2006.

Sturla Böðvarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica