Samgönguráðuneyti

342/1974

Hafnarreglugerð fyrir Hofsóskauptún - Brottfallin

HAFNARREGLUGERÐ

fyrir Hofsóskauptún.

 

I. KAFLI

TAKMÖRK HAFNARINNAR.

1. gr.

Hofsóshöfn takmarkast að vestan of linu dreginni i hásuður 1000 metra vestan við Hellisnes, að norðan og sunnan of tveim linum hornrétt á þá línu að norðan um Hellisnes og að sunnan úr innra Grafaróshorni.

 

II. KAFLI

STJÓRN HAFNARINNAR

2. gr.

Hreppsnefnd Hofsós hefur á hendi stjórn og rekstur hafnarinnar undir yfirum­sjón þess ráðuneytis, sem fer með stjórn hafnamála hverju sinni.

Hreppsnefnd kýs á fyrsta fundi sínum 5 manna hafnarnefnd og jafnmarga til vara og skipar formann hennar og varaformann. Boðar formaður til funda i hafnar­stjórn og stýrir þeim.

Kjörtímabil hafnarstjórnar skal vera hið sama og hreppsnefndar. Hafnarstjórn hefur á hendi framkvæmd hafnarmála og eftirlit með höfninni, sér um viðhald og endurbætur á höfninni og stýrir öllum framkvæmdum, er þar að lúta.

Haldið skal sérstakt reikningshald fyrir hafnarsjóð og skal hreppsnefndaroddviti annast það. Reikningar hafnarsjóðs skulu fylgja hreppsreikningum og endurskoðast ásamt þeim.

 

3. gr.

Til aðstoðar hafnarstjórn við daglegan rekstur hafnarinnar skal hafnarstjórn ráða hafnarstjóra og svo marga starfsmenn aðra, sem þurfa þykir, og setur þeim erindisbréf. Daglegan rekstur, framkvæmdir, eftirlit og umsjón annast hafnarstjóri i samráði við hafnarstjórn.

Allar ráðningar hafnarstarfsmanna eru háðar samþykki hafnarvarðar, en hafnar­stjórn getur sagt þeim upp eða vikið þeim frá, án þess að til þurfi að koma sam­þykki hans.

 

III. KAFLI

UM ALMENNA REGLU

4. gr.

 

Skip telst í reglugerð þessari hvert fljótandi far.

 

5. gr.

Sérhver skipstjóri, sem á skipi sínu kemur í höfnina, að bryggju eða að hafnar­bakka, skal gæta fyllsta öryggis í allri umferð í höfninni. Hann skal vera kunnugur ákvæðum reglugerðar hafnarinnar, svo og skipshöfn hans öll.

 

6. gr.

Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu í höfninni og á landi hennar. Er öllum skylt að hlýða boði hans og banni, svo og þeirra manna, er settir eru til að gæta


reglu. Þyki einhverjum sér óréttur ger of starfsmönnum hafnarinnar, getur hann kært fyrir hafnarstjórn, en skipun starfsmannsins ber að hlýða þegar i stað.

Starfsmenn hafnarinnar skulu gætu allrar kurteisi í starfi sínu.

 

7. gr,

Þeim, sem ekkert lögmætt erindi eiga er óheimilt að dvelja á landi hafnarinnar,    tálmi þeir með því fermingu eða affermingu eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers kyns ökutækja um bryggjur og hafnarbakka.            

 

8. gr.

Skylt er að gæta ýtrustu varúðar í meðferð opins elds og óbyrgðra ljósa í skip­um í höfninni. Hið sama gildir um tóbaksreykingar og ber, ef þurfa þykir, að banna þær á þeim stöðum, þar sem um eldhættu gæti verið að ræða. (Sjá 25. gr.).

 

9. gr.

Ekki má kasta i höfnina, á bryggjur eða hafnarbakka, kjölfestu, ösku, fiski, fiskúrgangi, veiðarfærum, trossum, vírum, matarleifum, umbúðum eða neins konar rusli. Allt þess háttar skal flutt á þann stað, sem hafnarvörður vísar til.

Ekki má láta olíur eða vatn mengað olíu renna í höfnina, á hafnarmannvirki eða á þilfar skipsins.

 

10. gr.

Notkun skotvopna er bönnuð innan takmarka hafnarinnar. Þá er bannað að blása í skipsflautur eða lúðra innan hafnarinnar frá kl. 24.00 að kveldi til kl. 07.00 að morgni, nema nauðsyn krefji.

 

IV. KAFLI

UM LEGU SKIPA Í HÖFNINNI OG AFGREIÐSLU ÞEIRRA

11. gr.

Þegar skip leitar hafnar, skal skipstjóri eða umboðsmaður skipsins tafarlaust snúa sér til hafnarvarðar, er vísar honum á legustað fyrir skipið.

Venjulega skal heimila skipum að leggjast að bryggjum eða bólvirkjum í þeirri röð, er þau koma til hafnarinnar. Þó skal farþegaskipum, sem siglt eftir fyrir fram auglýstri áætlun, leyft að leggjast að bryggjunni, þótt önnur skip liggi þar fyrir. Skulu þau þá víkja, sé það nauðsynlegt að dómi hafnarvarðar.

Leggist skipið við hafnarmannvirki, skulu landfestar bundnar, þar sem starfs­menn hafnarinnar segja til um. Sé fermingu eða affermingu skips eigi haldið áfram með hæfilegum hraða, að áliti hafnarvarðar, ber því að víkja fyrir öðrum skipum, ef hann krefst þess. Enn fremur getur hafnarstjórn eða umboðsmaður hennar vísað skipum frá bryggjum og bólvirkjum, álíti hann það nauðsynlegt vegna veðurs.

 

12. gr.

Ef sjúkdómur er á skipinu eða ástæða þykir til að ætla, að sótthætta geti stafað of því, ber hafnarverði að sjá um að fylgt sé þeim reglum, sem settar eru í lögum um varnir gegn því, að næmir sjúkdómar berist til Íslands.

 

13. gr.

Skip, sem ekki er verið að ferma eða afferma, eða ekki er unnið við, mega aldrei liggja þannig í höfninni, að þau tálmi vinna við önnur skip og skal skylt að hlýða boðum starfsmanna hafnarinnar um það, hvert þau skuli flutt. Ef ekki er orðið við boðum starfsmanna hafnarinnar í þessum efnum, er heimilt að færa skipið á kostnað eiganda.


 

14. gr.

Sé nauðsynlegt talið að skipum, sem fermd eru eða affermd, sé lagt hverju við hliðina á öðru, er heimilt að flytja farm skipa, er utar liggja, yfir þilfar hinna. Skipshöfn og farþegum þeirra skipa, sem utar liggja, er einnig heimil nauðsynleg umferð um þilför þeirra skipa, er nær liggja.

 

15. gr.

Í sérhverju skipi, sem ekki hefur leyfi hafnarvarðar til að liggja mannlaust á höfninni, skal jafnan vera a. m. k. einn maður, er getur tekið við fyrirskipunum frá starfsmönnum hafnarinnar og framkvæmt þær í samræmi við það, sem reglu­gerð þessi býður.

 

16. gr.

Eigi má festa skipum við hafnarbakka eða bryggjur nema við festarhringa eða festarstólpa, að tilvísun hafnarvarðar. Séu landfestar úr járni, skulu þær klæddar þar sem þær hvíla á hafnarbakkanum eða bryggjunni. Festum skal þannig komið fyrir, að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarverði þessa ekki nægilega gætt, getur hann krafist þess, að hætt sé úr því tafarlaust.

Skylt er að hafa hlífar milli skips og hafnarbakka eða bryggju, óski hafnar­vörður þess.

 

17. gr.

Skip mega ekki láta vélarnar ganga of svo miklu afli, að öðrum skipum eða hafnarmannvirkjum stafi of því hætta.

 

18. gr.

Ef skip lendir á grynningum og sekkur eða strandar, þar sem það að áliti hafnar­stjórnar tálmar greiðri notkun hafnarinnar eða umferð um hafnarsvæðið, veldur óæskilegum áhrifum á innsiglingu til hafnarinnar eða óprýði, skal fjarlægja það svo fljótt sem við verður komið. Verði dráttur á því má hafnarstjóri láta færa skipið Burt á kostnað eiganda og er honum, ef nauðsyn krefur, heimilt að láta selja skipið til lúkningar kostnaðinum.

 

19. gr.

Áður en kjölfesta er flutt á skip eða úr skipi, skal hafnarverði gert viðvart og ákveður hann þá hvar losun eða lestun kjölfestunnar fer fram.

Við losun eða lestun á kjölfestu, sandi, kolum og öðru þess háttar, er skylt að hafa nægilega tryggar hlífar á milli skipsins og hafnarbakka, bryggjunnar eða bátanna, svo að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa eigi gætt, getur hafnarvörður stöðvað verkið, uns umbætur hafa farið fram.

Skipstjóri skal sjá um, að kjölfesta sú, sem flutt hefur verið á land úr skipi hans, sé þegar i stað flutt burt of löndunarstaðnum þangað, sem hafnarvörður vísar til.

 

20. gr.

Þegar lokið er fermingu eða affermingu skal eigandi skips láta hreinsa bryggju þá eða hafnarbakka, sem notuð hafa verið, sé þess talin þörf. Farist það fyrir, skal hafnarstjóri sjá um að það sé Bert, en eigandi farms eða skips greiði þann kostnað, er of því leiðir. Kostnaðinn má taka lögtaki hjá eiganda farms eða skips.

 

21. gr.

Þær vörur, sem ferma skal eða afferma, svo og tæki þau, sem notuð eru við fermingu eða affermingu, mega ekki liggja á bryggjum eða bólvirkjum og eigi annars staðar á landi hafnarinnar en á þeim stöðum, sem ætlaðir eru til geymslu, nema með sérstöku leyfi hafnarvarðar. Skal flytja burt muni þessa og vörur jafn­skjótt og kann krefst þess.

 

V. KAFLI

UM SKIP, SEM LAGT ER Í LÆGI

22. gr.

Skipum má leggja í lægi á höfnina með sérstöku leyfi hafnarstjóra, sé það Bert undir umsjón hafnarvarðar, sem ákveður legustaðinn, legufærin og fyrirkomulag allt, er varðar lagningu skipsins.

 

23. gr.

Meðan skip liggur mannlaust i lægi á höfninni, skal ekki sjaldnar en á viku fresti fara út í það til að líta eftir hvort legufæri eða annað hefur farið úr lagi eða bilað. Ef svo reynist skal lagfæra það svo fljótt sem auðið er.

Leyfi hafnarstjórnar til að leggja skipi i lægi, er bundið því skilyrði, að ef skipið sekkur, láti eigandi þess taka það upp eða sprengja það i sundur, svo að það skemmi ekki höfnina. Sé því ekki fullnægt innan tiltekins frests, getur hafnarstjórnin látið framkvæma verkið á kostnað eiganda.

 

24. gr.

Heimilt er að leggja skipi í lægi á höfninni, þó það sé mannlaust, sé það svo þétt, að áliti hafnarvarðar, sem getur framkvæmt eða látið framkvæma á því rannsókn á kostnað eigandi, að ekki stafi of því rein hætta.

Á skipum þessum skal tendrað ljós samkvæmt reglum þeim, sem settar eru í al­þjóðasjóferðareglum um skip, er liggja fyrir akkeri.

Áður en skipstjóri fer of skipinu skal hinn skriflega tilkynna hafnarverði um um­sjónarmann, búsettan í því lögsagnarumdæmi, sem höfnin er í, sem skal hafa umsjón skipsins á hendi og skal skipstjóri ganga úr skugga um að hafnarstjóri sé samþykk­tir útnefningu umsjónarmannsins. Hafnarnefnd getur krafist, ef henni finnst ástæða til, að umsjónarmaður hafi skipstjórnarréttindi og hafi búsetu það nálægt hafnar­svæðinu að auðvelt sé að ná til hans í tæki tíð, er færa þarf skipið, eða til annarra þeirra aðgerða, er skipið snertir.

Hafnarvörður beinir til umsjónarmanns öllum þeim fyrirskipunum er skipið varða, en umsjónarmaður annað hvort framkvæmir fyrirskipanir hafnarvarðar eða sér um að þær séu framkvæmdar. Verði dráttur á því skal hafnarvörður láta framkvæma verkið á kostnað skipseiganda.

 

VI. KAFLI

UM FERMINGU OG AFFERMINGU ELDFIMRA VÖKVA OG SPRENGIEFNA

25. gr.

Skip, sem flytji eldfim efni svo sem steinolíu, gasolíu, bensín, aceton, terpen­tinu eða aðra álíka eldfima vökva, sprengiefni, svo sem púður, dynamit, geomit eða þess konar efni, mega ekki fara inn á höfnina fyrr en tilkynnt hefur verið um farm til hafnarvarðar og afferming leyfðu undir eftirliti brunavarða, ef til þess þykir ástæða. Um útskipun á sams konar farmi gildi sömu varúðarreglur.

 

26. gr.

Skip, sem hafa meðferðis þau efni, sem nefnd eru i næstu grein hér á undan, skulu, er þau koma inn á höfnina með þess konar farm, hafa á framsiglutoppi al­þjóðlegt merkjaflagg með bókstafnum "B", að degi til, en að næturlagi rautt ljós í þess stað. Merkið skal hafa uppi svo lengi sem skipið er í höfn og um hættu getur verið að ræða. Skip, sem ekki hafa framsiglu, skulu þess í stað reisa a. m. k. þriggja metra háa stöng, sem flagginu eða ljósinu skal komið fyrir á.

 

VII. KAFLI

UM GJÖLD TIL HAFNARINNAR

27. gr.

Öll skip skulu greiða hafnargjöld til hafnarsjóðs, er þau koma inn fyrir tak­mörk hafnarinnar.

Öll gjöld til hafnarinnar greiðast of brúttóstærð skipanna eins og hún er mest, meðan skipið hefur viðdvöl í höfninni. Hálf rúmlest telst sem heil, en minni hluta er sleppt. Undanþegin lestagjaldi og bryggjugjaldi eru herskip, íslensk vitaskip og varðskip.

Strandferðaskip, sem sigla eftir fastri áætlun, greiða hálft lestagjald en fullt bryggjugjald ef þau koma að bryggju. Sérstök gjaldskrá gildir fyrir íslensk fiski­skip allt að 400 rúmlestum.

28. gr. Lestagjöld.

Öll skip eða fleytur, hvort sem þau eru tóm eða hlaðin vörum eða seglfestu, skulu greiða lestagjald. Skip yfir 400 brúttórúmlestir að stærð skulu greiða kr. 3.00 fyrir hverja brúttórúmlest í hvert sinn, er þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar, með þeim undantekningum, er áður getur. Lægsta gjald er kr. 100.00.

Skip, sem leita til hafnar vegna sjóskaða eða skemmda á einhvern hátt, greiða ekki lestagjald, nema þau jafnframt fermi eða affermi einhverjar vörur.

Sama gildir og um skip, sem leita hafnarinnar til að rétta áttavita, setja á land sjúka menn eða látna.

 

29. gr.

Bryggjugjöld. Hvert skip, sem leggst við bryggju eða bólvirki, skal greiða bryggjugjald. Öll skip, sem ekki falla undir 30. gr., skulu greiða gjaldið fyrir hvern sólarhring eða hluta úr sólarhring, kr. 1.50 of hverri brúttólest, þó aldrei minna en kr. 100.00.

 

30. gr.

Hafnargjöld fyrir íslensk fiskiskip allt að 400 rúmlestir.

a. Opnir bátar greiði kr. 1000.00 á ári.

b. Fiskiskip, sem halda til í höfninni eða hafa uppsátur innan takmarka hafnar­innar þrjá mánuði samfleytt á almanaksárinu eða lengur, skulu greiða kr. 160.00 í lesta- og bryggjugjöld of hverri brúttórúmlest á ári.

Gjalddagi er 1. apríl eða eftir að skipið hefur verið Bert út frá höfninni í þrjá mánuði.

c. Önnur fiskiskip, sem hafa fasts viðlegu um skemmri tíma í höfninni greiði kr. 24.00 í lesta- og bryggjugjöld of hverri brúttórúmlest á mánuði.

d. Fiskiskip, sem ekki hafa fasts viðlegu í höfninni skulu greiða kr. 2.40 of hverri brúttórúmlest í lesta- og bryggjugjöld fyrir hvern sólarhring eða hluta úr sólarhring, sem þau dvelja í höfninni. Þó greiðist þetta gjald ekki oftar en 10 sinnum á almanaksmánuði. (Gjöld þau, er um getur í grein þessari, skulu greidd hvort sent skipin liggja við bryggju eða  bólvirki eða utan á bátum eða skipum.


 

31. gr.

Vörugjöld.

Vörugjald skal greiða of öllum vörum svo og skepnum, lifandi eða dauðum, sem skipað er út og upp á hafnarsvæðinu, með þeim undantekningum er síðar getur.

 

32. gr.

Fyrir vörur, sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til umhleðslu og eiga því ekki að leggjast á land nema um stundarsakir, greiðist aðeins hálft gjald.

 

33. gr.

Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:

a. Vörur, sem lagðar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi og vörur, sem settar eru á land og eiga að fara aftur með sama skipi.

b. Olía, kol, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar, sem fluttar eru úr landi. Enn fremur salt og ís, sem flutt er úr landi í íslensk skip til eigin notkunar.

c. Umbúðir, sem endursendar eru, enda sé þess getið í farmskrá. d. Bréfapóstur og farangur ferðamanna.

 

34. gr.

Vörugjald skal reikna eftir máli eða þyngd með umbúðum. Brot úr gjaldeiningu, sem nemur helmingi eða meira, telst heil gjaldeining. Fara skal eftir farmskrá skipa við ákvörðun og útreikning vörugjalds. Skipstjóri er skyldur til að láta hafnarverði í té eftirrit of farmskrá skips síns. Sé engin farmskrá fyrir hendi, skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn, sem skip hans hefur fermt eða afferent. Þyki hafnarstjórn ástæða til, getur hún hvenær sem er, látið ákveða vörumagnið á þann hátt, sem hún telur hentugast, svo sem vega afla á vog hafnarinnar gegn vigtar­gjaldi, sem hafnarstjórn ákveður. Reynist vörumagníð meira en upp var gefið, greiðir skipið kostnaðinn. Ef ýmsar vörutegundir eru i sömu lendingu og beri farmskrá ekki með sér greinilega sundurliðun i tegundir, skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund, sem hæst vörugjald ber.

 

35. gr.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá segir til um og greiða gjald, sem þar segir. Minnsta vörugjald skal vera krónur 10,00. Leiki vafi á í hvaða flokki skuli telja vöru, skal hafnarvörður skera úr um það, en úrskurði hans má áfrýja til hafnarstjórnar.

 

36. gr.

Vörugjaldskrá.

Brottfluttar og aðfluttar vörur:

1. fl. Gjald kr. 70.00/tonn:

a. Vara flutt í heilum skipsförmum eða lausu máli í miklu magni, meira en 100 tonn í farmi t, d. bensin, brennsluolíur, kol, korn, salt, cement, vikur.

b. Þungavarningur, sekkjavörur, óunnið járn og stál til iðnaðar eða mannvirkja­gerðar, hráefni til iðnaðar, útgerðarvörur, smurningsolíur, sjávarafurðir, land­búnaðarafurðir og iðnaðarvörur til útflutnings.

c. Útfluttar afurðir þ. m. t. sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir og iðnaðarvörur, unnar eða hálfunnar.


2. fl. Gjald kr. 150.00/tonn:

a. Unnar iðnaðarvörur þ. m. t. nýlenduvörur, unnar vörur til bygginga, gólfdúkar, flísar, þilplötur, efni til pípulagna, pökkuð matvæli, niðursuðuvörur, fatnaður.

b. Allt ótalið annars staðar (eftir þyngd).

3. fl. Gjald kr. 400.00/tonn:

a. Vélar og tæki hvers konar og varahlutir til þeirra þ. m. t. heimilisvélar, landbún­aðar- og vinnuvélar, loft- og rafknúin tæki, skrifstofutæki, bifreiðar, bifhjól, reið­hjól, hjólbarðar, húsgögn, hljóðfæri, bátar, flugvélar, hreyflar, mælitæki.

b. Útvarps- og sjónvarpstæki, úr, klukkur, myndavélar, sjónaukar, glysvarningur alls konar, vin, tóbak, ilmvötn, fegrunarvörur. Af flutningi vinnuvéla innanlands skal veita 50% afslátt. Af vörum undir staflið b. sé gjald kr. 800:00 á tonn, þegar um er að ræða flutning frá útlöndum.

4. fl. Gjald kr. 40.00/rúmmetra:

a. Timbur og annað eftir rúmmáli. 5. fl. Gjald 1 %:

Sjávarafli lagður á land á hafnarsvæðinu, til vinnslu eða brottflutnings. Gjaldið reiknast of heildarverðmæti aflans. Kaupanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um keyptan afla mánaðarlega, t. d. afrit of aflaskýrslu til Fiskifélags Íslands. Aflagjald fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs, þótt hann vanræki inn­heimtu þess. Standa ber skil á greiðslu aflagjaldsins eigi sjaldnar en mánaðarlega. Lágmarksgjald of öllum flokkum er kr. 20.00.

 

37. gr.

Ýmis gjöld til hafnarinnar.

Allt vörumagn, sem um höfnina fer og ekki er á farmskrá skal vegið á vog hafnar­innar, enda fullnægi hún þeim lagaákvæðum, sem í gildi eru hverju sinni um mál og vog. Fyrir vigtun á vog hafnarinnar skal eigandi vörunnar greiða í hafnarsjóð vigtar­gjald, sem nemur kr. 2.00 of hverjum 100 kg.

 

38. gr.

Fyrir að leggja vörur, sem affermdar eru, á land hafnarinnar, skal greiða kr. 1.00 fyrir hvern fermetra of landi því, sem varan liggur á, fyrir hvern sólarhring talið frá öðrum degi eftir að affermingu er lokið. Sama gjald skal greiða fyrir vörur, sem fluttar eru á land hafnarinnar og fara eiga i skip.

 

39. gr.

Fyrir lóðir hafnarinnar, geymsluhús og önnur mannvirki, sem eru leigð einstökum mönnum eða félögum um lengri tíma, skal greiða gjald, sem ákveðið verður með samningi.

 

40. gr.

Fyrir vatn afhent við bryggju skal greiða:

a. Heimabátar og skip undir 12 lestum brúttó kr. 500.00 á ári, 12-50 brúttórúm­lestir kr. 1 500.00 á ári, 50 brúttórúmlestir og yfir kr. 3 000.00. Gjalddagi er í apríl ár hvert.

b. Öll önnur skip og bátar skulu greiða fyrir vatn kr. 20.00 pr. tonn.


 

41. gr.

Önnur þjónusta, sem höfnin kann að láta skipum eða öðrum aðilum í té og ekki er talin falla undir þau gjöld, sem hér eru að framan talin, skal greidd samkvæmt reikningi frá hafnarsjóði.

 

42. gr.

Um innheimtu og greiðslu gjalda.

Hafnarstjóri sér um innheimtu hafnargjalda, og skal greiða gjöldin á skrifstofu hafnarinnar.

 

43. gr.

Skipstjóri, formaður eða eigandi ber ábyrgð á greiðslu hafnargjalda. Hafnar­sjóður hefur haldsrétt í skipum, uns hafnargjöld eru greidd. Þegar gjalddagar eru ekki ákveðnir í reglugerð þessari, skal greiða gjöldin áður en skipið fer burt úr höfn­inni.

 

44. gr.

Leigugjald fyrir lóðir og geymsluhús hafnarinnar skv. 38. og 39. gr. greiði mót­takandi of vörum, sem fluttar eru úr húsum eða of 1óð hafnarinnar.

Ef margir eiga vörur með sama skipi, skal afgreiðslumaður skipsins standa hafn­arskrifstofu skil á greiðslunni.

Ef skip eða bátur hefur ekki farm sinn skráðan, ber skipstjóri, formaður eða eigandi ábyrgð á greiðslu vörugjaldsins.

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað, greiðir sá vörugjaldið, sem affermir. Vörugjald of vörum, sem koma til hafnarinnar, fellur í gjalddaga þegar byrjað er að afferma skipið.

Vörugjald of vörum, sem fluttar eru frá bryggju eða bólvirki, fellur i gjalddaga þegar vörurnar eru komnar á skip.

Hafnarsjóður hefur haldsrétt í vörunum eða vandvirði þeirra, uns gjaldið er greitt.

 

45. gr.

Gjald fyrir að nota krana, sporbrautir eða önnur tæki og áhöld greiðir sá, sem semur við hafnarstjórn um afnotin.

 

46. gr.

Öll gjöld samkvæmt reglugerð þessari má taka lögtaki og hafa þau forgangs­rétt sem önnur opinber gjöld sbr. 83. gr. b, tölulið 3, skiptalaganna. Auk þess eru skipagjöldin tryggð með lögveði í skipinu og gengur það veð í tvö ár fyrir samnings­veðskuldum.

Skipagjöld teljast í reglugerð þessari öll þau gjöld, sem skipi ber að greiða til hafnarinnar, svo sem lestagjald, bryggjugjald og hafnsögugjald, svo og hvers konar aðstoð, sem skipinu er látin í té of hafnarinnar hálfu.

 

VIII. KAFLI

ÝMIS ÁKVÆÐI

47. gr.

Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar, tækjum og útbúnaði, fer eftir almennum reglum.

Ef samningum verður ekki við komið um skaðabætur, má ákveða þær of tveimur óvilhöllum, dómkvöddum mönnum. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfir­mats, en gera skal það áður en einn mánuður er liðinn frá því er matsgerð er lokið. Yfirmat skal framkvæmt of þremur óvilhöllum, dómkvöddum mönnum. Kostnaðinn við yfirmat greiðir sá, sem krafðist yfirmats, ef það gengur ekki honum í vil. Að öðrum kosti greiðir hinn aðilinn kostnaðinn.

 

48. gr.

Engum, sem bakað hefur sér refsingu eða skaðabótaskyldu fyrir brot á reglu­gerð þessari, heimilast að fara burt úr höfninni meðan mál hans er óútkljáð, nema hann setji tryggingu, sem hafnarstjórn tekur gilda.

 

49. gr.

Hverja þá skipun, sem samkvæmt þessari reglugerð heimilast að gefa forráða­mönnum skips, skal gefa stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi, og eigi heldur umboðsmaður hans skv. 11. gr. Ef stýrimaður er fjarverandi, má gefa einhverjum öðrum of skipshöfninni skipunina og er það jafngilt því, sem skipstjóri hefði fengið skipunina sjálfur.

 

50. gr.

Allir, sem æskja afgreiðslu fyrir skip, láns á tækjum eða aðstoðar á einn eða annan hátt hjá höfninni, skulu snúa sér til hafnarstjóra eða hafnarvarðar með beiðni þar að lútandi. Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða af­greiðslu, sem eru í vanskilum með gjöld til hafnarinnar.

 

51. gr.

Enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá lögreglu­stjóra, nema hann sanni með vottorði hafnargjaldkera, að hann hafi greitt gjöld þau, er honum ber að greiða, samkvæmt reglugerð þessari. Sama gildir um sektir og skaða­bætur er um þær er að ræða.

 

52. gr.

Innan hafnar má ekki sigla skipum hraðar en sem svarar 4 mílum á klst. nema sérstaklega standi á.

 

53. gr.

Meðfram strandlengju hafnarsvæðisins má ekki gera nein mannvirki, nema fyrir liggi umsögn hafnarstjórnar þar að lútandi.

 

54. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum, allt að kr. 100 000.00 nema þyngri refs­ing liggi við samkvæmt almennum lögum.

Sektirnar renna í hafnarsjóð.

 

55. gr.

Með mál út of brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt hafnalögum nr. 45 24. apríl 1973, stað­festist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Hofsóskauptún, nr. 192 8. júlí 1968.

 

Samgönguráðuneytið, 25. október 1974.

 

Halldór E. Sigurðsson.

Kristinn Gunnarsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica