Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

562/1987

Reglugerð um breytingu á reglugerð um vöruflutninga með loftförum nr. 51 27. febrúar 1976.

1. gr.

4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Flutningur varnings sérstaks eðlis.

4.1. Um flutning hergagna gilda sérstakar reglur.

4.2. Um flutning hættulegra efna gilda sérstakar reglur.

4.3. Við flutning lifandi dýra skal höfð hliðsjón af reglum Alþjóðasambands flugfélaga -International Air Transport Association - eins og þær eru á hverjum tíma, IATA Live Animals Manual (IATA LAM). Flugmálastjórn tilkynnir í Handbók flugmanna um gildandi útgáfu IATA LAM og útvegar eintök þeirra eftir þörfum.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 186. og 188. gr. laga um loftferðir nr. 34 21. maí 1964 og gildir um íslensk og erlend loftför, sem íslenskur aðili notar eða ræður yfir, hvar sem þau eru stödd, staðfestist hér með til að öðlast gildi 1. janúar 1988 og birtist til eftirbreytni öllum þeim er hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 468 15. nóvember 1979.

Samgönguráðuneytið, 9. nóvember 1987.

Matthías Á. Mathiesen.

Óskar Hallgrímsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.