Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

258/1975

Hafnarreglugerð fyrir Reykhólahöfn, Austur-Barðastrandarsýslu.

I. KAFLI Takmörk hafnarinnar.

1. gr.

Mörk hafnarsvæðis Reykhólahafnar ákveðst landmegin of strandlengju ríkisjarðarinnar Reykhóla.

Á sjó fram takmarkast hafnarsvæðið of mörkum jarðarinnar og sýslumörkum Barðastrandar- og Dalasýslu.

II. KAFLI Stjórn hafnarinnar.

2. gr.

Sýslunefnd hefur á hendi stjórn og rekstur hafnarinnar undir yfirumsjón þess ráðuneytis, sem fer með stjórn hafnamála hverju sinni.

Sýslunefnd kýs á fyrsta fundi sínum 3 manna hafnarnefnd og jafnmarga til vara og skipar formann hennar og varaformann. Boðar formaður til funda í hafnarnefnd og stýrir þeim.

Kjörtímabil hafnarnefndar skal vera sama og sýslunefndar.

Hafnarnefnd hefur á hendi framkvæmd hafnarmála og eftirlit með höfninni, sér um viðhald og endurbætur a höfninni, og stýrir öllum framkvæmdum, er þar að láta.

Haldið skal sérstakt reikningshald fyrir hafnarsjóð og skal hafnarnefnd annast það. Reikningar hafnarsjóðs skulu fylgja sýslureikningum, og endurskoðast ásamt þeim.

3. gr.

Til aðstoðar hafnarnefnd við daglegan rekstur hafnarinnar skal hafnarnefnd ráða hafnarstjóra og svo marga starfsmenn aðra sem þurfa þykir, og setur þeim erindisbréf. Daglegan rekstur, framkvæmdir, eftirlit og umsjón annast hafnarstjóri í samráði við hafnarnefnd.

Allur ráðningar hafnarstarfsmanna eru háðar samþykki sýslunefndar, en hafnarnefnd getur sagt þeim upp eða vikið þeim frá, án þess að til þurfi að koma samþykki.

III. KAFLI Um almenna reglu.

4. gr.

Skip teljast í reglugerð þessari hvert fljótandi far.

5. gr.

Sérhver skipstjóri, sem á skipi sinn kemur í höfnina, að bryggju eða að hafnarbakka, skal gæta fyllsta öryggis í allri umferð í höfninni. Hann skal vera kunnugur ákvæðum reglugerðar hafnarinnar, svo og skipshöfn hans öll.

6. gr.

Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu í höfninni og á landi hennar. Er öllum skylt að hlýða boði hans og banni, svo og þeirra manna, er settir eru til að gæta. reglu. Þyki einhverjum sér óréttur gerr af starfsmönnum hafnarinnar, getur hann kært fyrir hafnarnefnd, en skipun starfsmannsins ber að hlýða þegar í stað.

Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi sinn.

7. gr.

Þeim, sem ekkert lögmætt erindi eiga, er óheimilt að dvelja á landi hafnarinnar, tálmi þeir með því fermingu eða affermingu eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers kyns ökutækja um bryggjur og hafnarbakka.

8. gr.

Skylt er að gæta ýtrustu vartíðar í meðferð opins gilds og óbyrgðra ljósa í skipum í höfninni. Hið sama gildir um tóbaksreykingar og ber, ef þurfa þykir, að banna þær á þeim stöðum, þar sem um eldhættu gæti verið að ræða (sjá 25. gr.).

9. gr.

Ekki má kasta í höfnina, á bryggjur eða hafnarbakka, kjölfestu, ösku, fiski, fiskúrgangi, veiðarfærum, trossum, vírum, matarleifum" umbúðum eða neins konar rusli. Allt þess háttar skal flutt á þann stað, sem hafnarvörður vísar til.

Ekki má láta olíur eða vatn mengað olíu, renna í höfnina á hafnarmannvirki eða á þilfar skipsins.

10. gr.

Notkun skotvopna er bönnuð innan takmarka hafnarinnar. Þá er bannað að blása í skipsflautur eða lúðra innan hafnarinnar frá kl. 24.00 að kveldi til kl. 07.00 að morgni, nema nauðsyn krefji.

IV. KAFLI Um legu skipa í höfninni og afgreiðslu þeirra.

11. gr.

Þegar skip leitar hafnar, skal skipstjóri eða umboðsmaður skipsins tafarlaust snúa sér til hafnarvarðar, er vísar honum á legustað fyrir skipið.

Venjulega skal heimila skipum að leggjast að bryggjum eða bólvirkjum i þeirri röð, er þau koma til hafnarinnar. Þó skal farþegaskipum, sem sigla eftir fyrir fram auglýstum áætlunum, leyft að leggjast að bryggjum, þótt önnur skip liggi þar fyrir. Skulu þau þá víkja, sé það nauðsynlegt að dómi hafnarvarðar.

Leggist skipið við hafnarmannvirki, skulu landfestar bundnar þar sem starfsmenn hafnarinnar segja til um. Sé fermingu eða affermingu skips eigi haldið áfram með hæfilegum hraða, að áliti hafnarvarðar, her því að víkja fyrir öðrum skipum, ef hinn krefst þess. Enn fremur getur hafnarnefnd eða umboðsmaður hennar vísað skipum frá bryggjum og bólvirkjum, álíti hinn það nauðsynlegt vegna veðurs.

12. gr.

Ef sjúkdómur er á skipinu eða ástæða þykir til að ætla að sótthætta geti stafað of því, ber hafnarverði að sjá um að fylgt sé þeim reglum, sem settar eru í lögum um varnir gegn því að næmir sjúkdómar berist til Íslands.

13. gr.

Skip, sem ekki er verið að ferma eða afferma, eða ekki er unnið við, mega aldrei liggja þannig í höfninni, að þau tálmi vinnu við önnur skip og skal skylt að hlýða boðum starfsmanna hafnarinnar um það, hvort þau skuli flutt. Ef ekki er orðið við boðum starfsmanna hafnarinnar í þessum efnum, er heimilt að færa skipið á kostnað eiganda.

14. gr.

Sé nauðsynlegt talið að skipum, sem fermd eða affermd eru, sé lagt hverju við hliðina á öðru, er heimilt að flytja farm skipa, er utar liggja yfir þilfar hinna. Skipshöfn og farþegum þeirra skipa, sem utar liggja, er einnig heimil nauðsynleg umferð um þilför þeirra skipa,sem nær liggja.

15. gr.

Í sérhverju skipi, sem ekki hefur leyfi hafnarvarðar til að liggja mannlaust á höfninni, skal jafnan vera a. m. k. einn maður, er getur tekið við fyrirskipunum frá starfsmönnum hafnarinnar og framkvæmt þær í samræmi við það, sem reglugerð þessi býður.

16. gr.

Eigi má festa skipum við hafnarbakka eða bryggjur nema við festarhringa eða festarstólpa, að tilvísun hafnarvarðar. Séu landfestar úr járni, skulu þær klæddar þar sem þær hvíla á hafnarbakkanum eða bryggjunni. Festum skal þannig komið fyrir, að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarverði þessa ekki nægilega gætt, getur hann krafist þess, að hætt sé úr því tafarlaust.

Skylt er að hafa hlífar milli skips og hafnarbakka eða bryggju, óski hafnarvörður þess.

17. gr.

Skip mega ekki láta vélarnar ganga of svo miklu afli, að öðrum skipum, eða hafnarmannvirkjum stafi of því hætta.

18. gr.

Ef skip lendir á grynningum og sekkur eða strandar, þar sem það að áliti hafnarnefndar tálmar greiðri notkun hafnarinnar eða umferð um hafnarsvæðið, veldur óæskilegum áhrifum á innsiglingu til hafnarinnar eða óprýði, skal fjarlægja það svo fljótt sent við verður komið. Verði dráttur á því má hafnarstjóri láta færa skipið burt á kostnað eiganda og er honum, ef nauðsyn krefur, heimilt að láta selja skipið lúkningar kostnaðinum.

19. gr.

Áður en kjölfesta er flutt á skip eða úr skipi, skal hafnarverði Bert viðvart og ákveður hann þá hvar losun eða lestun kjölfestunnar fer fram.

Við losun eða lestun á kjölfestu, sandi, kolum og öðru þess háttar, er skylt að hafa nægilega tryggar hlífar á milli skipsins og hafnarbakka, bryggjunnar eða bátanna, að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa eigi gætt, getur hafnarvörður stöðvað verkið, uns umbætur hafa farið fram.

Skipstjóri skal sjá um, að kjölfesta sú, sem flutt hefur verið á land úr skipi hans, sé þegar í stað flutt Burt of löndunarstaðnum þangað, sem hafnarvörður vísar til.

20. gr.

Þegar lokið er fermingu eða affermingu skal eigandi skips láta hreinsa bryggju þá eða hafnarbakka, sem notuð hafa verið, sé þess talin þörf. Farist það fyrir, skal hafnarstjóri sjá um að það sé gert, en eigandi farms eða skips greiði þann kostnað, er af því leiðir. kostnaðinn má taka lögtaki hjá eigandi farms eða skips.

21. gr.

Þær vörur, sem ferma skal eða afferma, svo og tæki þau sem, notuð eru við fermingu eða affermingu, mega ekki liggja a bryggjum eða bólvirkjum og eigi annars staðar á landi hafnarinnar en á heim stöðum, seta ætlaðir eru til geymslu, nema með sérstöku leyfi hafnarvarðar. Skal flytja burt muni þessa og vörur jafnskjótt og hann krefst þess.

V. KAFLI Um skip, sem lagt er i lægi.

22. gr.

Skipum má leggja i lægi á höfnina með sérstöku leyfi hafnarstjóra, sé það Bert undir umsjón hafnarvarðar, sem ákveður legustaðinn, legufærin og fyrirkomulag allt, er varðar lagningu skipsins.

23. gr.

Meðan skip liggur mannlaust í lægi á höfninni, skal ekki sjaldnar en á viku fresti fara út í það til að líta eftir hvort legufæri eða annað hefur farið úr lagi eða bilað. Ef svo reynist skal lagfæra það svo fljótt sem auðið er.

Leyfi hafnarstjórnar til að leggja skipi í lægi, er bundið því skilyrði, að ef skipið sekkur, láti eigandi þess taka það upp eða sprengja það í sundur, svo að það skemmi ekki höfnina. Sé því ekki fullnægt innan tiltekins frests, getur hafnarstjórnin látið framkvæma verkið á kostnað eiganda.

24. gr.

Heimilt er að leggja skipi í lægi á höfninni, þó það sé mannlaust, sé það svo þétt, að áliti hafnarvarðar, sem getur framkvæmt eða látið framkvæma á því rannsókn á kostnað eiganda, að ekki stafi of því nein hætta.

Á skipum þessum sl:al tendrað ljós samkvæmt reglum þeim, sem settar eru í alþjóðasjóferðareglum um skip, er liggja fyrir akkeri.

Áður en skipstjóri fer of skipinu skal hinn skriflega tilkynna hafnarverði um umsjónarmann, búsetum í því lögsagnarumdæmi sem höfnin er í, sem, skal hafa umsjón skipsins á hendi og skal skipstjóri ganga úr skugga um að hafnarstjóri sé samþykktir útnefningu umsjónarmannsins. Hafnarnefnd getur krafist, ef henni finnst ástæða til, að umsjónarmaður Hafi skipstjórnarréttindi og hafi búsetu það nálægt hafnarsvæðinu að auðvelt Sé að ná til hans í tæka tíð, er færa þarf skipið, eða til annarra þeirra aðgerða, er skipið snertir.

Hafnarvörður beinir til umsjónarmanns öllum þeim fyrirskipunum er skipið varða, en umsjónarmaður annað hvort framkvæmir fyrirskipanir hafnarvarðar eða sér um að þær séu framkvæmdar. Verði dráttur á því skal hafnarvörður láta framkvæma verkið á kostnað skipseiganda.

VI. KAFLI Um fermingu og affermingu eldfimra vökva og sprengiefna.

25. gr.

Skip, sem flytja eldfim efni svo sem steinolíu, gasolíu, bensín, aceton, terpentinu eða aðra álíka eldfima vökva, sprengiefni, svo sem púður, dinamit, geomil eða þess konar efni, mega ekki fara inn á höfnina fyrr en tilkynnt hefur verið um, farm til hafnarvarðar og afferming leyfð undir eftirliti brunavarða, ef til þess þykir ástæða. Um útskipun á sams konar farmi gilda sömu varúðarreglur.

26. gr.

Skip, sem hafa meðferðis þau efni, sem nefnd eru í næstu grein hér á undan, skulu, er þau koma inn í höfnina með þess konar farm, hafa á framsiglutoppi alþjóðlegt merkjaflagg með bókstafnum "B", að degi til, en að næturlagi rautt ljós í þess stað. Merki skal hafa uppi svo lengi sem skipið er í höfn og um hættu getur verið að ræða. Skip, sem ekki hafa framsiglu, skulu þess í stað reisa a. m.. k. þriggja metra háa stöng, sem flagginu eða ljósinu skal komið fyrir á.

VII. KAFLI Um gjöld til hafnarinnar.

27. gr.

Gjöld til hafnars,jóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrá, er hafnarnefnd semur í samræmi við 26, gr. hafnalaga nr. 15/1973 og samgönguráðuneytið staðfestir.

VIII. KAFLI Ýmis ákvæði.

28. gr.

Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar, tækjum og útbúnaði, fer eftir almennum reglum.

Ef samningum verður ekki við komið um skaðabætur, má ákveða þær of tveimur óvilhöllum, dómkvöddum mönnum. Hvorum, aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, en gera skal það áður en einn mánuður er liðinn frá því er matsgerð er lokið. Yfirmat skal framkvæmt of þremur óvilhöllum, dómkvöddum mönnum. Kostnaðinn við yfirmat greiðir sá, sem krafðist yfirmats, ef það gengur ekki honum í vil. Að öðrum kosti greiðir hinn aðilinn kostnaðinn.

29. gr.

Engum, sem bakað hefur sér refsingu eða skaðabótaskyldu fyrir brot á reglugerð þessari, heimilast að fara burt úr höfninni meðan mál hans er óútkljáð, nema hann setji tryggingu, sem hafnarstjórn tekur gilda.

30. gr.

Hverja þá skipun, sem samkvæmt þessari reglugerð heimilast að gefa forráðamönnum skips, skal gefa stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi, og eigi heldur umboðsmaður hans skv. 11. gr. Ef stýrimaður er fjarverandi, má gefa einhverjum öðrum of skipshöfninni skipunina og er það jafngilt því, sem skipstjóri hefði fengið skipunina sjálfur.

31. gr.

Allir, sem æskja afgreiðslu fyrir skip, láns á tækjum eða aðstoðar á einn eða annars hátt hjá höfninni, skulu snúa sér til hafnarstjóra eða hafnarvarðar með beiðni þar að lútandi. Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða afgreiðslu sem eru í vanskilum með gjöld til hafnarinnar.

32. gr.

Enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá lögreglustjóra, nema h:um sinni með vottorði hafnargjaldkera, að hinn hafi greitt gjöld þau, er honum ber að greiða, samkvæmt reglugerð þessari. Sama gildir um sektir og skaðabætur, ef um þær er að ræða.

33. gr.

Innan hafnar má ekki sigla skipum hraðar en sem svarar 4 mílum á klst. nema sérstaklega standi á.

34. gr.

Meðfram strandlengju hafnarsvæðisins má ekki gera nein mannvirki, nema fyrir liggi umsögn hafnarnefndar þar að lútandi.

35. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum, allt að kr. 100 000.00 nema þyngri refsing liggi við samkvæmt almennum lögum.

Sektirnar renna i hafnarsjóð.

38. gr.

Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessari, sem sett er samkvæmt hafnalögum nr. 45 24. apríl 1973, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Samgönguráðuneytið, 25. apríl 1975.

Halldór E. Sigurðsson.

Kristinn Gunnarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.