Samgönguráðuneyti

22/1976

Reglugerð um breytingu á hafnarreglugerð fyrir Raufarhöfn nr. 149 7. júlí 1964. - Brottfallin

1. gr.

VII. kafli orðist þannig:

Um hafnargjöld á Raufarhöfn.

21. gr.

Gjöld til hafnarsjóðs Raufarhafnar skulu innheimt samkvæmt gjaldskrá, er hafnarstjórn semur og samgönguráðuneytið staðfestir.

2. gr.

VIII. kafli og greinar nr. 22-38 falla niður og breytast eftirfarandi greinar og kaflar í samræmi við það.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt hafnalögum, nr. 45 24. apríl 1973, stað­festist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 20 13. apríl 1973, um breytingu á hafnar­reglugerð fyrir Raufarhöfn, nr. 149 7. júlí 1964.

 

Samgönguráðuneytið, 22. janúar 1976.

 

Halldór E. Sigurðsson.

Kristinn Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica