Samgönguráðuneyti

100/1986

Hafnarreglugerð fyrir Sauðárkrókshöfn. - Brottfallin

HAFNARREGLUGERÐ

fyrir Sauðárkrókshöfn.

 

I.KAFLI

Höfnin og stjórn hennar.

1. gr.

Takmörk hafnarinnar.

1.1.Hafnarsvæði Sauðárkrókshafnar tekur yfir botn Skagafjarðar, vestan Hegraness.

1.2 Takmörk á sjó eru:

Botn Skagafjarðar innan beinnar línu, er hugsast dregin úr melhorni norðan við Gönguskarðsárós í vitann í Hegranesi.

1.3 Takmörk á landi eru:

Frá suðurgarði að sunnan að bæjarmörkum við Gönguskarðsárósa að norðan, að austan ræður stórstraumsflóðborð. Mörk að vestan eru við Strandveg og Eyrarveg.

1.4 Hafnarsvæði, er teljast innri höfn í reglugerð þessari, eru:

Sjávarsvæði innan beinnar línu frá enda suðurgarðs í enda hafnarsvæðis. Önnur sjávarsvæði teljast ytri höfn.

1.5 Landssvæði hafnarinnar skiptast í:

- Hafnarbakka og bryggjur.

- Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði

- Götur.

- Iðnaðar- og baksvæði.

 

2. gr.

Stjórn hafnarinnar.

2.1 Sauðárkrókskaupstaður er eigandi hafnarinnar og sveitarstjórn fer með stjórn hafnarmála undir yfirumsjón samgönguráðuneytisins.

2.2 Hafnarstjórn fer með framkvæmd hafnarmála í umboði sveitarstjórnar. Hafnarstjórn skal skipuð 5 fulltrúum, er sveitarstjórn kýs og jafnmörgum til vara. Minnst 2 aðalmanna í hafnarstjórn skulu eiga sæti í sveitarstjórn.

Kjörtímabil hafnarstjórnar er hið sama og sveitarstjórnar. Það er borgaraleg skylda að taka við kosningu í hafnarstjórn.

2.3 Auk hinna kjörnu fulltrúa eiga bæjarstjóri, bæjartæknifræðingur og hafnarvörður sæti í hafnarstjórn með málfrelsi og tillögurétt.

2.4 Hafnarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna hafnarstjórnarmanna. Stýrir harm fundum hennar og boðar til þeirra í samráði við hafnarstjóra.

 

3. gr.

Hlutverk og valdssvið hafnarstjórnar.

3.1 Hafnarstjórn gerir fjárhagsáætlun fyrir hafnarsjóð, þar sem fram kemur viðhald hinna ýmsu hafnarmannvirkja svo og nýbyggingar. Hafnarstjórn skal leggja fjárhagsáætlun fyrir sveitarstjórn til staðfestingar.

Hafnarstjórn skal leita staðfestingar sveitarstjórnar á lántökum og öðrum fjárhagsskuldbindingum.

3.2 Hafnarstjórn gerir tillögu um:

- Ráðningu fastra starfsmanna sbr. 5. gr.

- Rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu þ. m. t. leiga á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar, sem leigt er til skamms tíma.

- Leyfisveitingar til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefir vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæða fyrir starfsemi, er hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.

3.3 Hafnarstjórn gerir tillögur til sveitarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðinu.

Byggingamál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar og bygginganefndar áður en þau eru lögð fyrir sveitarstjórn.

Innan hafnar má ekki heldur gera nein hafnarmannvirki, né breyta þeim mannvirkjum, sem nú eru og ekki heldur fylla upp, né dýpka út frá landi, nema leyfi hafnarstjórnar og/eða sveitarstjórnar komi til.

Hafnarstjórn hefur eftirlit á hafnarsvæðinu með byggingu mannvirkja, sem undanþegin eru ákvæðum byggingalaga nr. 54/1978.

 

4. gr.

Hlutverk hafnarstjóra.

4.1 Hafnarstjóri, sem skipaður er of sveitarstjórn að fenginni tillögu hafnarstjórnar, fer með daglega stjórn hafnarinnar í umboði hafnarstjórnar. Hafnarstjóri undirbýr mál, sem leggja á fyrir hafnarstjórn og veitir viðtöku erindum til hennar.

Hann sér um framkvæmd samþykkta hafnarstjórnar og veitir hafnarstjórn og sveitarstjórn upplýsingar um málefni hafnarinnar. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs.

4.2 Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnarreglugerðar og fara að öðru leyti eftir samþykktum hafnarstjórnar og sveitarstjórnar.

4.3 Hafnarstjóri sér um, að gætt sé reglu á höfninni og á landi hennar. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans, eða þeirra sem harm felur slík störf.

 

5. gr.

Hafnarvörður og aðrir starfsmenn hafnarinnar.

5.1 Hafnarstjórn gerir tillögu um ráðningu hafnarvarðar og annarra fastra starfsmanna hafnarinnar (sbr. 4. gr.) svo margra, sem þurfa þykir. Vikukaupsmenn og fólk til afleysinga ræður hafnarstjóri.

5.2 Hafnarstarfsmenn, sem hafa umsjón með eignum hafnarinnar, gæta reglu og sinna skipaþjónustu, skulu bera skilríki um starfs sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar.

5.3 Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi. Þyki einhverjum sér óréttur gerður af starfsmönnum hafnarinnar, getur harm kært það fyrir hafnarstjóra en skipun starfsmannsins ber að hlýða þegar í stað.

 

II. KAFLI

Umferð skipa.

6. gr.

Skilgreining á skipi.

6.1 Skip telst í reglugerð þessari sérhvert fljótandi far, sem nota má sem flutningatæki, dvalarstað, vinnustað, framleiðslustað eða geymslustað, þar með taldir kafbátar.

 

7. gr.

Almennar reglur við komu og brottför.

7.1 Við komu og brottför skulu skip hafa þjóðfána við hún.

7.2 Þjónusta við skip er unnin of hafnarverði í umboði hafnarstjóra. Skip skulu við komu, brottför og siglingu um hafnarsvæðið hafa opna talstöð á viðskiptabylgju Sauðárkrókshafnar.

7.3 Sérhvert skip skal boða áætlaða komu sína (ETA) til hafnarvarðar með fjarskiptasambandi eða gegnum umboðsmann með minnst 24 klst. fyrirvara, en fiskiskip í síðasta lagi við komu á ytri höfn. Tilkynna skal brottför með minnst 3ja klst. fyrirvara.

7.4 Skipstjóri skal við komu til hafnar gefa hafnarverði eftirfarandi upplýsingar:

- Skipsnafn, heimahöfn, stærð samkvæmt mælibréfi, djúprista og síðasti viðkomustaður.

- Nafn skipstjóra.

- Stærð áhafnar og fjöldi farþega.

- Tegund og magn farms.

- Um hættulegan flutning, tegund og magn.

- Um hugsanlega sjúkdóma um borð.

- Nafn umboðsmanns.

Reglur þessar gilda ekki um herskip, varðskip, rannsóknarskip og fiskiskip né um áætlunarskip nema eftir því sem við á.

7.5 Búnaður skipa skal uppfylla kröfur alþjóðasamþykkta, sem íslensk stjórnvöld hafa staðfest svo og sérreglur Siglingamálastofnunar ríkisins. Skipsstjórnarmenn skulu sýna hafnarstarfsmönnum, ef óskað er, skírteini um fullnægjandi búnað skipa sinna.

 

8. gr.

Hafnsaga og önnur þjónusta við skip.

8.1 Sérhvert skip, sem ætlar til Sauðárkróks og nota vill hafnsögumann, skal gera boð um það til hafnarvarðar með minnst 3ja klst. fyrirvara. Vísar þá hafnsögumaður skipinu leið til hafnar og má eigi yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er lagst við festar á höfninni. Heimilt er hafnsögumanni, meðan harm hefur ekki lokið starfi sínu, að banna hverjum þeim, sem ekki á lögmætt erindi, að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð, ber skipinu að sjá honum fyrir fæði.

8.2 Ekkert íslenskt skip, sem er stærra en 400 brúttórúmlestir og ekkert erlent skip má fara inn í innri höfnina eða út úr henni án leiðsögumanns, sem hafnarvörður lætur skipinu í té. Hafnarvörður getur vein undanþágu frá ákvæði þessu.

 

9. gr.

Umferð um höfnina.

9.1 Skip, sem ekki hefur hafnsögumann um borð, skal með talstöðvarsambandi við hafnarvörð fá upplýsingar um hvar binda megi skipið, áður en haldið er inn á innri höfn. Óheimilt er að binda skip annarsstaðar en þar sem starfsmenn hafnarinnar vísa til.

9.2 Á innri höfninni má ekki sigla skipum hraðar en svarar 5 sjómílum á klst., en þó aldrei

hraðar en aðstæður og góð sjómennska leyfa. Sérstaka aðgát skal sýna þegar farið er um svæði, þar sem unnið er að dýpkun, köfun og þess háttar enda skal við slík störf hafa uppi viðeigandi merki.

9.3 Skip mega ekki láta vélar ganga of svo miklu afli að öðrum skipum eða hafnarvirkjum stafi hætta of því.

9.4 Bannað er að blása í flautur og lúðra á innri höfninni, nema umferð gefi tilefni til þess.

9.5 Skylt er að gæta allrar varúðar í meðferð elds og ljósa í skipum á höfninni.

9.6 Sérhvert skip, sem ekki er bundið við bryggju eða hafnarbakka, skal hafa uppi fyrirskipuð ljós og dagmerki.

9.7 Skemmti- og smábátar, þar með taldir ára- og seglbátar, skulu svo sem frekast er unnt forðast siglingaleiðir stærri skipa, sem eru á leið til eða frá höfninni. Ennfremur skal sýna sérstaka aðgæslu, er skip njóta aðstoðar dráttarbáta eða eru að leggja að og frá viðlegu.

9.8 Ekkert skip má liggja við dufl eða akkeri á innri höfninni, nema með leyfi hafnarvarðar.

 

10. gr.

Skip í viðlegu.

10.1 Skip telst í viðlegu, er það liggur við hafnarbakka, bryggju eða föst legufæri og er í eða bíður eftir afgreiðslu eða þjónustu.

10.2 Skip hljóta viðlegu í sömu röð og þau koma til hafnar. Undantekin eru skip, sem hafa fastar viðlegur eða umsamin forgangsafnot hafnarbakka og skemmtiferðaskip.

10.3 Ekki má festa skipum við hafnarbakka eða bryggjur, nema við festarhringa eða festarstólpa. Festum skal þannig komið fyrir, að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarverði þessa ekki nægilega gætt, getur harm krafist, að bætt sé úr því tafarlaust.

Skylt er að hafa hlífar milli skips og hafnarbakka eða bryggju ef hafnarvörður krefst þess.

Ekki má krækja hökum í bryggjur eða hafnarbakka. Ekki mega skip hleypa vatni á bryggju eða hafnarbakka, hvorki við þvott á þilfari né heldur, er þau hleypa Burt vatni eða á annan hátt, heldur skulu þau girða svo fyrir með hlífum, að vatnið fari beint í höfnina en komist eigi á bryggjuna eða hafnarbakkann.

10.4 Þegar búið er að leggja skipi við hafnarbakka, má ekki flytja það innan hafnar án leyfis hafnarvarðar, en skyldur er skipstjóri að flytja skipið, ef hafnarvörður skipar svo fyrir. Skip, sem ekki er verið að lesta eða losa, eða ekki eru í rekstri, mega aldrei liggja svo í höfninni, að þau tálmi vinnu við önnur skip og skal skylt að hlýða boðum hafnarinnar um flutning þeirra. Liggi skip á innri höfninni án þess nokkuð sé unnið við það, getur hafnarvörður krafist þess, að það sé tekið burtu.

Færist hlutaðeigandi undan að færa skipið samkvæmt ákvæðum þessa töluliðs eða dragist flutningur þess yfir þann tíma, er hafnarvörður hefur fyrirskipað, er hafnarverði heimilt að láta flytja skipið á kostnað og ábyrgð skipseiganda.

10.5 Í sérhverju skipi skal jafnan vera einn maður að minnsta kosti, er tekið geti á móti skipunum starfsmanna hafnarinnar og framkvæmt þær. Skal harm sjá um að óviðkomandi aðilar hafi ekki aðgang að skipinu og ber eigandi fulla ábyrgð á öllu því tjóni, er leiða kann of vanrækslu í þessu efni. Heimilt er hafnarverði að fallast á gæslu sérstakra öryggisvarða, enda séu hjá skipaþjónustu nöfn skipstjórnarmanna, sem kalla má út vegna veðurs eða annarra orsaka.

10.6 Hafnarvörður ákveður legur fyrir skip 12 brl. og minni við viðeigandi mannvirki eftir því sem rými leyfir. Þegar skip er sjósett eða siglt í höfn, skal eigandi tilkynna það hafnarverði. Skip þessi eru á ábyrgð eigenda, sama hvort þau eru á floti í höfninni eða á landi hennar. Heimilt er að fela félögum smábátaeigenda umsýslu á ákveðnum svæðum undir eftirliti hafnarvarðar samkvæmt nánari reglum.

 

11. gr.

Skip í lægi.

11.1 Skip telst í lægi er það liggur fyrir akkeri eða öðrum legufærum og er ekki í rekstri.

11.2 Skipum, sem leggja skal í lægi, má aðeins leggja á þeim stöðum, er hafnarvörður leyfir. Skipunum skal lagt undir umsjá hafnarvarðar og legufæri ákveðin í samráði við harm. Eftirlit og viðhald legufæra er á ábyrgð skipseiganda.

Meðan skip liggur mannlaust í lægi, skal ekki sjaldnar en tvisvar í mánuði farið út í það til þess að líta eftir, hvort legufæri eða annað hafi haggast eða bilað, og ef svo reynist, skal lagfæra það svo fljótt, sem auðið er.

Áður en skipstjóri fer of skipinu, skal harm skriflega tilgreina hafnarverði siglingafróðan mann, sem búsettur sé á Sauðárkróki, sem hafa skal umsjón skipsins á hendi. Beinir hafnarvörður til hans öllum fyrirskipunum, sem skipið varða. Sér harm um að þeim sé fullnægt. Verði dráttur á því, skal hafnarvörður láta fullnægja þeim, en skipseigandi greiði allan kostnað, sem of því leiðir.

 

III. KAFLI

Afnot hafnarvirkja og landsvæða.

12. gr.

Lestun og losun, almennt.

12.1 Afnot hafnarvirkja og lands eru öllum heimil að fengnu leyfi hafnaryfirvalda og gegn greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá.

12.2 Hafnarstjórn ber enga ábyrgð á varningi eða öðrum eignum, sem geymdar eru á hafnarsvæðinu.

12.3 Við lestun og losun skal viðhafa fyllstu gætni til að koma í veg fyrir óeðlilegt slit mannvirkja og búnaðar. Ekki má draga þunga hluti eftir hafnarbökkum, né sturta varningi of bílum án eðlilegs hlífðarlags.

12.4 Hafnarvörður skal færa skrá yfir lyfti- og flutningatæki og annan tækjabúnað, sem notaður er við höfnina.

Eigendur slíkra tækja skulu sækja um leyfi til notkunar þeirra á hafnarsvæðinu hjá hafnarverði, m. a. sökum þungatakmarkana á hafnarsvæðinu.

12.5 Óheimilt er að geyma tækjabúnað á hafnarsvæðinu án leyfis hafnaryfirvalda.

12.6 Þeir munir eða vörur, sem skipað er upp eða láta á í skip, mega ekki liggja á bryggju, hafnarbakka eða annarsstaðar á landi hafnarinnar en á þeim stöðum, sem ætlaðir eru til geymslu, nema með sérstöku leyfi hafnarvarðar. Hafnarvörður getur flutt vörur og muni, sem geymdir eru í óleyfi, Burt á kostnað og ábyrgð eiganda eða umboðsmanns hans.

12.7 Við lestun og losun á vikri, sandi, kolum og öðru þess háttar, er skylt að hafa nægilega sterkar hlífar milli skips og hafnarbakka, svo að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa eigi gætt, getur hafnarvörður stöðvað verkið, uns bætt hefur verið úr því, sem áfátt er.

12.8 Þegar lokið er lestun eða losun skal sá er séð hefur um lestun eða losun, láta ræsta bryggju þá eða hafnarbakka, sem notuð hefur verið. Farist það fyrir, skal hafnarvörður sjá um að það sé gert, en afgreiðslumaður skipsins greiði allan kostnað, sem af því leiðir

 

13. gr.

Meðferð eldfims og hættulegs varnings.

13.1 Skip, sem flytja sprengiefni, eldfima vökva, lofttegundir undir þrýstingi (flöskugas) eða efni, sem við vissar aðstæður valda eld- eða sprengihættu, mega ekki koma inn á innri höfnina, fyrr en leyfi hefur verið vent til þess.

Skipstjóra eða umboðsmanni ber að tilkynna hafnarverði og slökkviliðsstjóra um farminn 24 klst. fvrir áætlaðan komutíma.

Tilkynningarskyldan nær til efna, sem samkvæmt International Maritime Dangerous Goods Code flokkast í flokka 1, 2, 3, 4 og 5. Í tilkynningu skal greina nafn á varningi, magn, pökkun og lestun. Sem dæmi um hættulegan varning má nefna: púður, dýnamit, geomit, hlaðnar patrónur, bensín, steinolíu, aceton, terpentínu, toulol, kosangas, kalciumkarbit, ammoníumnítrat, natriumklorat.

13.2 Losun á vörum, sem um ræðir í þessari grein skal að jafnaði framkvæmd strax og skip hefur lagst að bryggju og á undan losun á öðrum varningi. Við lestun skal slíkur farmur lestaður síðast, og skal skip láta úr höfn strax að lestun lokinni.

Álíti hafnarvörður að hætta geti stafað of lestun eða losun eldfimrar vöru getur harm stöðvað verkið uns nauðsynlegar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar.

Hlíta skal í einu og öllu ákvæðum brunamálasamþykktar fyrir Sauðárkrók.

13.3 Skylt er að hafa öryggisvörð við skip, sem lesta eða losa eldfimar vörur. Hafnarvörður getur ákveðið að lestun og losun slíkrar vöru fari fram við sérstaka hafnarbakka, þar sem tryggast er talið. Varningur skal geymdur á svæði, sem hafnarvörður eða viðkomandi eftirlitsstofnun samþykkir.

Setja skal sérstakar reglur um nánari framkvæmd og ákvæði þessarar greinar, sbr. IMO-Recommendation on save transport handling storage of dangerous substances in-port areas.

Skip, sem flytja eldfim efni, skulu á daginn hafa uppi rautt flagg (merkjatákn B) á framsiglu, en á nóttunni rautt ljósker.

Í skipum, sem flytja eldfim efni, má eigi kveikja eld eða ljós nema undir kötlum skipsins eða í eldavél skipsins og á lögboðnum ljóskerjum. Tóbaksreykingar eru bannaðar í þeim skipum og á því svæði, þar sem unnið er að fermingu eða affermingu eldfims varnings.

 

IV. KAFLI

Um hafnargjöld í Sauðárkrókshöfn.

14. gr.

Um hafnargjöld.

14.1 Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrám, er settar skulu í samræmi við ákvæði 13. gr. hafnalaga.

 

V. KAFLI

Ýmis ákvæði.

15. gr.

Löggæsla á hafnarsvæðinu, umferð og fleira.

15.1 Lögreglan á Sauðárkróki hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðinu.

15.2 Þeim, sem ekkert lögmætt erindi eiga, er bannað að dvelja á landi hafnarinnar, ef þeir með því tálma lestun og losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers konar ökutækja um bryggjur, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði.

Hafnarstjórn getur sett hraða- og þungatakmarkanir á hafnarsvæðinu. Fólk. sem fer um hafnarsvæðið, er þar á eigin áhættu og ábyrgð. Sund er bannað á hafnarsvæðinu án leyfis, nema á sérstökum baðsvæðum.

15.3 Bannað er að skjóta of byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis.

15.4 Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðinu án leyfis. Fiskveiðar á hafnarsvæðinu mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu.

15.5 Hafnarverði skal þegar tilkynnt um allt það, sem bjargað er í höfninni, en harm gefur lögreglunni skýrslu um það.

 

16. gr.

Skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

16.1 Ef skip lendir á grynningum eða sekkur, þar sem það, að áliti hafnarvarðar tálmar greiðri notkun hafnarinnar, skal færa það burtu svo fljótt sem auðið er. Verði dráttur á því, má hafnarvörður láta færa skipið burtu á kostnað eigandans, og er honum heimilt að láta selja skipið til lúkningar kostnaðinum, ef nauðsyn krefur. Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis.

16.2 Ef skip, bátar, flutningatæki á landi eða annar búnaður er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og veldur óþrifnaði og hættu þá skal hafnarvörður fyrirskipa úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hluti á kostnað eiganda án nokkurrar skaðabótaskyldu.

 

17. gr.

Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

17.1 Engum úrgangi eða rusli má kasta í höfnina.

17.2 Bannaður er hvers konar hvalskurður í og við höfnina. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt inn í höfnina hvaltegundir, skipsflök eða neitt það, sem valdið getur óþrifnaði, umferðatruflun eða óþægindum í höfninni, nema leyfi hafnarvarðar komi til.

17.3 Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri, er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíur, lýsi, olíusora eða annað, sem mengun veldur.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lagaákvæðum á hverjum tíma.

 

18. gr.

Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

18.1 Allir þeir, sem æskja afgreiðslu fyrir skip, láns á tækjum eða aðstoð á einn eða annan hátt hjá höfninni, skulu snúa sér beint til skrifstofu hafnarinnar með beiðni þar að lútandi. Heimilt er hafnarverði að neita þeim aðilum um aðstoð eða afgreiðslu. sem eru í vanskilum með gjöld til hafnarinnar.

 

19. gr.

Hverjum gefa skal fyrirmæli.

19.1 Hverja þá skipun, sem samkvæmt reglugerð þessari má gefa skipi, skal gefa skipstjóra, en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi og eigi heldur umboðsmaður hans, samkvæmt gr. 10.5. Ef stýrimaður er fjarverandi, má gefa einhverjum öðrum of skipshöfninni skipunina, og er það jafngilt sem skipstjóri hefði fengið skipunina sjálfur.

 

20. gr.

Um skaðabótaskyldu.

20.1 Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum, fer eftir almennum reglum.

Ef samningum verður ekki við komið um skaðabætur, má ákveða þær of tveim óvilhöllum, dómkvöddum mönnum. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, en gera skal það áður en 1 mánuður er liðinn frá því, að matsgerð er lokið. Yfirmat skal framkvæmt of þremur óvilhöllum, dómkvöddum mönnum. Kostnaðinn við yfirmat greiðir sá sem krafðist yfirmats, ef það gengur honum ekki í vil.

20.2 Nú veldur skip skemmdum í höfninni eða skipstjóri verður brotlegur við ákvæði reglugerðar þessarar, og er þá óheimilt að flytja skipið úr höfninni áður en málið er útkljáð nema fullnægjandi trygging sé sett fyrir greiðslu, að dómi hafnarstjóra.

20.3 Hvers konar bótakröfum fylgir lögtaksréttur.

 

21. gr.

Brot, sektarákvæði og meðferð mála.

2.1 Brot gegn reglugerð þessari varða sektum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt almennum lögum.

Sektirnar renna í hafnarsjóð Sauðárkróks.

Til tryggingar sektum og vangoldnum gjöldum má leita kyrrsetningar sbr. 39. gr. hafnalaga.

21.1 Með má1 út of brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt hafnalögum nr. 69, 28. maí 1984, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Sauðárkrók, nr. 282/1972, sbr. nr. 264/1975.

 

Samgönguráðuneytið, 14. febrúar 1986.

 

Matthías Bjarnason.

Ólafur S. Valdimarsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica