Samgönguráðuneyti

432/1993

Reglugerð um breytingu á reglugerð um flutningaflug nr. 641/1991 með síðari breytingum. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um flutningaflug nr. 641/1991

með síðari breytingum.

1. gr.

Grein 9.1.1.1. orðist svo:

Þótt flughandbók geri einugis ráð fyrir einum flugmanni, skulu samt vera tveir flugmenn með tilskilin réttindi á viðkomandi flugvélartegund í flutningaflugi með farþega. Í þjónustu með einshreyfils flugvélum, sem flogið er að degi til við sjónflugsskilyrði, er þó heimilt að í flugáhöfn sé einn flugmaður. Þessi grein tekur gildi 1. Júni 1996.

2. gr.

Grein 9.1.1.1.1. orðist svo:

Til 1. júní 1996 gildir að í flutnigaflugi með farþega skulu vera tveir flugmenn með tilskilin réttindi á viðkomandi flugvélartegund enda þótt flughandbók geri einungis ráð fyrir einum flugmanni, þegar um er að ræða:

a.       reglubundið áætlunarflug og leigu- eða þjónustuflug milli Íslands og annarra landa og

b.      reglubundið áætlunarflug og leigu- eða þjónustuflug með:

         i.            þotum,

       ii.            skrúfuþotum með jafnþrýstibúnaði,

      iii.            flugvélum sem gerðar eru til flutninga á fleiri en 9 farþegum.

3. gr.

Reglugerð þessi tekur til íslenskra flugvéla og annarra flugvéla sem íslenskur flugrekandi notar eða ræður. Reglugerðin er sett samkvæmt 188. gr. laga nr. 34, 21. maí 1964 um loftferðir og staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytið, 18. október 1993.

Halldór Blöndal.

Halldór S. Kristjánsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica