Samgönguráðuneyti

146/1989

Hafnarreglugerð fyrir Tálknafjarðarhöfn. - Brottfallin

HAFNARREGLUGERÐ

fyrir Tálknafjarðarhöfn.

 

I. KAFLI

Höfnin og stjórn hennar.

1. gr.

Takmörk hafnarinnar.

1.1     Hafnarsvæði Tálknafjarðarhafnar tekur yfir Hópið og er nánar lýst þannig:

1.2.    Takmörk á sjó eru frá Sveinseyrarodda að Lambeyri.

1.3.    Takmörk á landi eru neðan Strandgötu frá landamerkjum Sveinseyrar/Þinghóls og inn að Hvítalæk.

1.4.        Landsvæði hafnarinnar skiptist í:

          - Bryggjur.

- Afgreiðslusvæði.

- Götur.

- Iðnaðar- og baksvæði.

- Dráttarbraut og land tengt henni:

 

2. gr.

Stjórn hafnarinnar.

2.1.    Tálknafjarðarhreppur er eigandi hafnarinnar. Hreppsnefnd fer með stjórn hafnarmála undir yfirumsjón samgönguráðuneytisins.

2.2.    Hafnarstjórn fer með framkvæmd hafnarmála í umboði hreppsnefndar. Hafnarstjórn skal skipuð þrem fulltrúum og jafnmörgum til vara er hreppsnefnd kýs. Minnst einn aðalmanna í hafnarstjórn skal eiga sæti í hreppsnefnd: Kjörtímabil hafnarstjórnar er hið sama og hreppsnefndar.

2.3.    Auk hinna kjörnu fulltrúa eiga sveitarstjóri og hafnarstjóri sæti í hafnarstjórn með málfrelsi og tillögurétt.

2.4.    Hafnarstjórn kýs sér formann og stýrir kann fundum hennar og boðar til þeirra í samráði við hafnarstjóra.

 

3. gr.

Hlutverk og valdsvið hafnarstjórnar.

3.1.    Hafnarstjórn gerir fjárhagsáætlun fyrir hafnarsjóð, þar sem fram kemur viðhald hinna ýmsu hafnarmannvirkja svo og nýbyggingar. Hafnarstjórn skal leggja fjárhagsáætlun fyrir hreppsnefnd til staðfestingar. Hafnarstjórn gerir tillögur til hreppsnefndar um ráðningu hafnarstjóra og annarra fastra starfsmanna hafnarinnar.

3.2.    Hafnarstjórn hefur endanlegt ákvörðunarvald um:

          -  Rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu þ.m.t. leiga á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar, sem leigt er til skamms tíma.

          -  Leyfisveitingar til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banns eða takmarka afnot hafnarsvæða er hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.

3.3.    Hafnarstjórn gerir tillögur til hreppsnefndar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðinu. Byggingamál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar og bygginganefndar áður en þau eru lögð fyrir hreppsnefnd. Innan hafnar má ekki heldur gera nein hafnarmannvirki, né breyta þeim mannvirkjum sem nú eru og ekki heldur fylla upp, né dýpka út frá landi, nema leyfi hafnarstjórnar og/eða hreppsnefndar komi til. Hafnarstjórn hefur eftirlit á hafnarsvæðinu með byggingu mannvirkja sem undaþegin eru ákvæðum byggingarlaga nr. 54/1978.

 

4. gr.

Hlutverk hafnarstjóra.

4.1     Hafnarstjóri er skipaður af hreppsnefnd að fenginni tillögu hafnarstjórnar og fer með daglega stjórn hafnarinnar í umboði hafnarstjórnar. Hafnarstjóri undirbýr má1 sem leggja á fyrir hafnarstjórn og veitir viðtöku erindum til hennar. Hann sér um framkvæmd samþykkta hafnarstjórnar og veitir hafnarstjórn og hreppsnefnd upplýsingar um málefni hafnarinnar. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs og ber í hvívetna að gæta hagsmuna hafnarsjóðs. Í erindisbréfi má setja nánari reglur um starfssvið hafnarstjóra.

4.2.    Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnarreglugerðar og fara að öðru leyti eftir samþykktum hafnarstjórnar og hreppsnefndar.

4.3.    Hafnarstjóri sér um, að gætt sé reglu í höfninni og á landi hennar. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans, eða þeirra sem hann felur slík störf.

 

5. gr.

Aðrir starfsmenn hafnarinnar.

5.1.    Vikukaupsmenn og fólk til afleysinga ræður hafnarstjóri.

5.2.        Hafnarstarfsmenn, sem hafa umsjón með eignum hafnarinnar, gæta reglu og sinna hafnarvörslu, skulu vera skilríki um starf sitt og /eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar.

5.3.        Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi. Þyki einhverjum sér óréttur gerður af starfsmönnum hafnarinnar, getur hann kært það fyrir hafnarstjórn en skipun starfsmannsins ber að hlýða þegar í stað.

 

II. KAFLI

Umferð skipa.

 

6. gr.

Skilgreining á skipi.

6.1     Skip telst í reglugerð þessari sérhvert fljótandi far, sem nota má sem flutningatæki, dvalarstað, vinnustað, framleiðslustað eða geymslustað.

 

7. gr.

Almennar reglur við komu og brottför.

7.1.    Við komu og brottför að degi til skulu skip, önnur en íslensk fiskiskip, hafa þjóðfána við hún.

7.2.    Þjónusta við skip, svo sem vatnsafgreiðsla og tenging rafmagns, er unnin af hafnarvörðum undir stjórn hafnarstjóra. Skip skulu við komu, brottför og siglingu um hafnarsvæðið hafa opna talstöð á viðskiptabylgju Tálknafjarðarhafnar.

7.3.    Sérhvert skip skal boða áætlaða komu sína (ETA) til hafnarvarða með fjarskiptasambandi eða gegnum umboðsmann með minnst 24 klst. fyrirvara, en fiskiskip í síðasta lagi með 1 klst. fyrirvara. Tilkynna skal brottför með minnst 3ja klst. fyrirvara.

7.4.    Skipstjóri skal við komu til hafnar gefa skipaþjónustu eftirfarandi upplýsingar eftir því sem við á:

          -  Skipsnafn, skipaskrárnúmer, þjóðerni, stærð samkvæmt mælibréfi, djúpristu og síðasta viðkomustað.

          -  Nafn skipstjóra.

          -  Stærð áhafnar og fjölda farþega.

          -  Tegund og magn farms.

-        -  Um hættulegan farm, tegund (tækniheiti og IMDG flokkun) og magn.

          -  Nafn umboðsmanns.

7.5     Búnaður skipa skal uppfylla kröfur alþjóðasamþykkta, sem íslensk stjórnvöld hafa staðfest svo og sérreglna Siglingamálastofnunar ríkisins. Skipstjórnarmenn skulu sýna hafnarstarfsmönnum, ef óskað er, skírteini um fullnægjandi búnað skipa sinna.

 

8. gr.

Umferð um höfnina.

8.1.    Skip sem kemur til hafnar skal leita upplýsinga hjá hafnarverði eða umboðsmanni hvar binda megi skipið við bryggju. Óheimilt er að binda skip annars staðar en þar sem starfsmenn hafnarinnar vísa til.

8.2.    Skip mega ekki láta vélar gangs af svo miklu afli að öðrum skipum eða mannvirkjum stafi hætta af straumi frá aðal- eða þverskrúfum.

8.3.    Skylt er að gæta allrar varúðar í meðferð elds og ljósa í skipum á höfninni.

8.4.    Sérhvert skip, sem ekki er bundið við bryggju eða hafnarbakka, skal hafa uppi fyrirskipuð ljós og dagmerki.

8.5.    Skemmti- og smábátar, þar með taldir árs- og seglbátar, skulu svo sem frekast er unnt forðast siglingaleiðir stærri skipa, sem eru á leið til eða frá höfninni. Ennfremur skal sýna sérstaks aðgæslu er skip eru að leggja að og frá viðlegu.

 

9. gr.

Skip í viðlegu.

9.1.    Skip telst í viðlegu, er það liggur við hafnarbakka, bryggju, þ.m.t. utan á öðru skipi, eða föst legufæri og er í eða bíður eftir afgreiðslu eða þjónustu.

9.2.    Skip hljóta viðlegu í sömu röð og þau koma til hafnar. Undantekin eru skip sem hafa fastar viðlegur eða umsamin forgangsafnot hafnarbakka og skemmtiferðaskip.

9.3.    Ekki má festa skip við hafnarbakka eða bryggjur nema við festarhringa eða festarstólpa. Festum skal þannig komið fyrir, að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarstjóra þess ekki nægilega gætt, getur hann krafist, að bætt sé úr því tafarlaust.

9.4.    Þegar búið er að leggja skipi við bryggju, má ekki flytja það innan hafnar án leyfis hafnarstjóra, en skyldur er skipstjóri að flytja skipið, ef hafnarstjóri skipar svo fyrir. Skip, sem ekki er verið að lesta eða loss, eða eru ekki í rekstri, mega aldrei liggja svo í höfninni, að þau tálmi vinnu við önnur skip og skal skylt að hlýða boðum hafnarinnar um flutning þeirra. Færist hlutaðeigandi undan að færa skipið samkvæmt ákvæðum þessa töluliðs eða dragist flutningur þess yfir þann tíma, er hafnarstjóri hefur fyrirskipað, er hafnarstjóra heimilt að láta flytja skipið á kostnað og ábyrgð skipseiganda.

9.5.    Í sérhverju skipi skal að jafnaði vera einn maður að minnsta kosti, er tekið geti á móti skipunum starfsmanna hafnarinnar og framkvæmt þær. Skal hann sjá um að óviðkomandi aðilar hafi ekki aðgang að skipinu og ber eigandi fulla ábyrgð á öllu því tjóni, er leiða kann af vanrækslu í þessu efni. Heimilt er hafnarstjóra að fallast á gæslu sérstakra öryggisvarða, enda séu hjá hafnarvörðum nöfn skipstjórnarmanna, sem kalla má út vegna veðurs eða annarra orsaka.

9.6.    Hafnarverðir ákveða legur fyrir skip 12 brl. og minni við viðeigandi mannvirki eftir því sem rými leyfir. Þegar skip er sjósett eða siglt í höfn, skal eigandi tilkynna það hafnarvörðum. Skip þessi eru á ábyrgð eigenda, sama hvort þau eru á floti í höfninni eða á landi hennar. Heimilt er að fela félögum smábátaeigenda umsýslu á ákveðnum svæðum undir eftirliti hafnarstjóra samkvæmt nánari reglum.

 

10. gr.

Skip í lægi.

10.1.     Skip telst í lægi er það liggur fyrir akkeri eða öðrum legufærum og er ekki í rekstri.

10.2.     Skipum, sem leggja skal í lægi, má aðeins leggja á þeim stöðum, er hafnarstjóri leyfir. Skipum skal lagt undir umsjá hafnarstjóra og legufæri ákveðin í samráði við hann. Eftirlit og viðhald legufæra er á ábyrgð skipseigenda. Meðan skip liggur mannlaust í lægi, skal ekki sjaldnar en tvisvar í mánuði farið út í það til þess að líta eftir, hvort legufæri eða annað hafi haggast eða bilað, og ef svo reynist, skal lagfæra það svo fljótt sem auðið er. Áður en skipstjóri fer af skipinu, skal hann skriflega tilgreina hafnarstjóra siglingafróðan mann, sem búsettur sé á Tálknafirði sem hafa skal umsjón skipsins á hendi. Beinir hafnarstjóri til hans öllum fyrirskipunum sem skipið varða. Sér hann um að þeim sé fullnægt. Verði dráttur á því skal hafnarstjóri láta fullnægja þeim, en skipseigandi greiði allan kostnað sem af því leiðir.

 

III. KAFLI

Afnot hafnarvirkja og landsvæða.

 

11. gr.

Lestun og losun, almennt.

11.1.  Afnot hafnarvirkja og lands eru öllum heimil að fengnu leyfi hafnaryfirvalda og gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá.

11.2.  Hafnarstjórn ber enga ábyrgð á varningi eða öðrum eignum, sem geymdar eru á hafnarsvæðinu.

11.3.  Við lestun og losun skal viðhafa fyllstu gætni til að koma í veg fyrir óeðlilegt slit mannvirkja og búnaðar. Ekki má draga þunga hluti eftir hafnarbökkum, né sturta varningi af bílum án eðlilegs hlífðarlags.

11.4.  Hafnarstjórn getur sett hraða- og þungatakmarkanir á hafnarsvæðinu. f sérstökum tilfellum er þó hafnarstjóra heimilt að veita undanþágu frá slíku.

11.5.  Óheimilt er að geyma tækjabúnað á hafnarsvæðinu utan eigin leigusvæða án leyfis hafnaryfirvalda.

11.6.  Þeir munir eða vörur sem skipað er upp eða láta á í skip, mega ekki liggja á bryggju, hafnarbakka eða annars staðar á landi hafnarinnar en á þeim stöðum, sem ætlaðir eru til geymslu á slíkum varningi. Hafnarstjóri getur flutt vörur og muni, sem geymdir eru í óleyfi, burt á kostnað og ábyrgð eiganda eða umboðsmanns hans.

11.7.  Við lestun og losun á vikri, sandi, kolum og öðru þess háttar, er skylt að hafa nægilega sterkar hlífar milli skips og hafnarbakka svo að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa eigi gætt, getur hafnarstjóri stöðvað verkið uns bætt hefur verið úr því sem áfátt er.

11.8.  Þegar lokið er lestun eða losun skal sá er séð hefur um lestun eða losun, láta ræsta bryggju þá eða hafnarbakka sem notuð hefur verið. Farist það fyrir skal hafnarstjóri sjá um að það sé gert, en afgreiðslumaður skipsins greiði allan kostnað sem af því leiðir.

 

12. gr.

Meðferð eldfims og hættulegs varnings.

12.1.  Skip sem flytja sprengiefni, eldfima vökva, lofttegundir undir þrýstingi (flöskugas) eða efni, sem við vissar aðstæður valda eld- eða sprengihættu, mega ekki leggjast að bryggju fyrr en leyfi hefur verið veitt til þess. Skipstjóra eða umboðsmanni ber að tilkynna hafnarstjóra og slökkviliðsstjóra um farminn 24 klst. fyrir áætlaðan komutíma. Tilkynningarskyldan nær til efna sem samkvæmt alþjóðareglum (International Maritime Dangerous Goods Code) flokkast í flokka 1, 2, 3, 4, og 5. Í tilkynningu skal greina tækniheiti efna og UN-tölu þeirra skv. IMDG-reglum, magn, pökkun og lestun.  Sem dæmi um hættulegan varning má nefna: púður, dýnamít, geomit, hlaðnar patrónur, bensín, steinolíu, aceton, terpentínu, toluol, kosangas, kalciumkarbit, ammoniumnitrat, natríumklórat.

12.2.  Losun á vörum sem um ræðir í þessari grein skal að jafnaði framkvæmd strax og skip hefur lagst að bryggju og á undan losun á öðrum varningi. Við lestun skal slíkur farmur lestaður síðast og skal skip láta úr höfn strax að lestun lokinni. Álíti hafnarstjóri að hætta geti stafað af lestun eða losun eldfimrar vöru getur kann stöðvað verkið uns nauðsynlegar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar.

12.3.  Skylt er að hafa öryggisvörð við skip sem er að lesta eða losa eldfimar vörur. Hafnarstjóri getur ákveðið að lestun eða losun slíkrar vöru fari fram við sérstaka hafnarbakka þar sem tryggast er talið. Varningur skal geymdur á svæði sem hafnarstjóri samþykkir. Setja skal sérstakar reglur um nánari framkvæmd og ákvæði þessarar greinar, sbr. ráðleggingar Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) um öryggi við flutning, meðferð og geymslu á hættulegum efnum á hafnarsvæðinu. Skip, sem flytja eldfim efni, skulu á daginn hafa uppi rautt flagg (merkjatákn B) á framsiglu en á nóttunni rautt ljósker. Í skipum sem flytja eldfim efni, má eigi kveikja eld eða ljós nema undir kötlum skipsins eða í eldavél skipsins og á lögboðnum ljóskerjum. Tóbaksreykingar eru bannaðar í þeim skipum og á því svæði, þar sem unnið er að fermingu eða affermingu eldfims varnings.

 

IV. KAFLI

Um hafnargjöld á Tálknafirði.

 

13. gr.

Um hafnargjöld.

13.1.  Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrám er settar skulu í samræmi við ákvæði 13. gr. hafnalaga.

 

V. KAFLI

Ýmis ákvæði.

 

14. gr.

Löggæsla á hafnarsvæðinu, umferð og fleira.

14.1.  Lögreglan á Tálknafirði hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðinu.

14.2.  Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga, er bannað að dvelja á landi hafnarinnar ef þeir með því tálma lestun og losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers konar ökutækja um bryggjur, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði. Fólk sem fer um hafnarsvæðið, er þar á eigin áhættu og ábyrgð.

14.3.  Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis.

14.4.  Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðinu án leyfis. Fiskveiðar á hafnarsvæðinu mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri bótalaust.

14.5.  Hafnarstjóra skal þegar tilkynnt um allt það sem bjargað er í höfninni en kann gefur lögreglunni skýrslu um það.

 

15. gr.

Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

15.1.  Ef skip lendir á grynningum eða sekkur, þar sem það, að áliti hafnarstjóra tálmar greiðri notkun hafnarinnar skal færa það Burt svo fljótt sem auðið er. Verði dráttur á því má hafnarstjóri láta færa skipið Burt á kostnað eigandans og er honum heimilt að láta selja skipið til lúkningar kostnaðinum ef nauðsyn krefur. Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis.

15.2.  Ef skip, bátar, bryggjur, flutningatæki á landi eða annar búnaður er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu þá skal hafnarstjóri fyrirskipa úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt má fjarlægja viðkomandi hluti á kostnað eiganda án nokkurrar skaðabótaskyldu.

 

16. gr.

Varnir gegn mengun og óþrifnaði

16.1.  Engum úrgangi eða rusli má kasta í höfnina.

16.2.  Bannað er hvers konar hvalskurður í og við höfnina. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt inn í höfnina hvali, skipsflök eða neitt það, sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfninni nema leyfi hafnarstjóra komi til.

16.3.  Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíur, lýsi, olíusora eða annað sem mengun veldur. Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti, skulu áður hafa gert ráðstafanir svo olía renni ekki í sjóinn af þilfari, verði óhapp, m.a. með því að loka afrennslisleiðum frá þilfari. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa, sem ekki hafa að mati hafnarstarfsmanna gengið forsvaranlega frá þessum atriðum. Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lagaákvæðum á hverjum tíma.

 

17. gr.

Beiðni um skilyrði fyrir þjónustu.

17.1.  Allir þeir, sem æskja afgreiðslu fyrir skip, láns á tækjum eða aðstoðar á einn eða annan hátt hjá höfninni skulu snúa sér beint til skrifstofu hafnarinnar með beiðni þar að lútandi. Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða afgreiðslu sem eru í vanskilum með gjöld til hafnarinnar.

 

18.gr.

Hverjum gefa skal fyrirmæli.

18.1.  Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skal gefa skipstjóra, en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi og eigi heldur umboðsmaður hans, samkvæmt gr. 9.5. Ef stýrimaður er fjarverandi má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipunina og er það jafngilt sem skipstjóri hefði fengið skipunina sjálfur.

 

19. gr.

Um skaðabótaskyldu.

19.1.  Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum reglum. Ef samningum verður ekki við komið um skaðabætur, má ákveða þær af tveimur dómkvöddum mönnum. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, en gera skal það áður en 1 mánuður er liðinn frá því að matsgerð er lokið. Yfirmat skal framkvæmt af þremur dómkvöddum mönnum. Kostnaðinn við yfirmat greiðir sá sem krafðist yfirmats, ef það gengur honum ekki í vil.

19.2.  Nú veldur skip skemmdum í höfninni eða skipstjóri verður brotlegur við ákvæði reglugerðar þessarar og er þá óheimilt að flytja skipið úr höfninni áður en málið er útkljáð, nema fullnægjandi trygging sé sett fyrir greiðslu að dómi hafnarstjóra. Bótakröfum hafnarsjóðs fylgir lögtaksréttur sbr. 38. gr. hafnalaga.

 

20. gr.

Brot, sektarákvæði og meðferð mála.

20.1.  Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt almennum lögum. Sektirnar renna í hafnarsjóð Tálknafjarðar. Til tryggingar sektum og vangoldnum gjöldum má leita kyrrsetningar sbr. 39. gr. hafnalaga.

20.2.  Með má1 út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála. Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt hafnalögum nr. 69, 28. maí 1984, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Tálknafjarðarhöfn nr. 43/1970, ásamt breytingu nr. 123/1975.

 

Samgönguráðuneytið, 15. mars 1989.

 

Steingrímur J. Sigfússon.

Helgi Jóhannesson


Þetta vefsvæði byggir á Eplica