Innviðaráðuneyti

841/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.

1. gr.

Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, sem orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2476 frá 8. desember 2025 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtalin gerð:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2476 frá 8. desember 2025 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegur EES-nefndarinnar nr. 153/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 524-540.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 228. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 9. júlí 2026.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 23. júlí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica