Innviðaráðuneyti

804/2025

Um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur. REGLUGERÐ um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.

1. gr.

Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, sem orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3137 frá 13. desember 2024 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtalin gerð:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3137 frá 13. desember 2024 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 105/2025 frá 8. maí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 22. maí 2025, bls. 314-332.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 228. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 2. júlí 2025.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 16. júlí 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica