1. gr.
Við 1. mgr. 25. gr. a reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/443 frá 8. febrúar 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1151 að því er varðar gerðarviðurkenningaraðferðir vegna losunar frá léttum farþega- og atvinnuökutækjum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 207/2023, 22. september 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 77 frá 17. október 2024, bls. 60-296.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 5. mars 2025.
Eyjólfur Ármannsson
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Ingilín Kristmannsdóttir.