Innviðaráðuneyti

611/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 975/2004 um vinnu- og hvíldartíma skipverja á íslenskum fiskiskipum.

1. gr.

Við 1. mgr. 11. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi:

Með reglugerðinni eru jafnframt innleidd ákvæði tilskipunar ráðsins (ESB) 2017/159 um fram­kvæmd samningsins um framkvæmd samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um vinnu við fisk­veiðar, 2007, sem gerður var 21. maí 2012 milli Samtaka samvinnufélaga í landbúnaði í Evrópu­samband­inu (Cogeca), Sambands félaga flutningaverkamanna í Evrópu (ETF) og Bandalags lands­samtaka fiskveiðifyrirtækja í Evrópusambandinu (Europêche), sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2021 frá 11. júní 2021. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 49/2021, frá 22. júlí 2021, bls. 164-187.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 8. og 64. gr. sjómannalaga, nr. 35/1985 og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 18. maí 2022.

 

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica