Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

668/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 507/2007 um akstursíþróttir og aksturskeppni.

1. gr.

4. mgr. 21. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Lágmarksaldur miðað við ökutæki skal ákveðinn í reglum viðkomandi íþróttasambands skv. 1. mgr. 2. gr. Reglur íþróttasambands um lágmarksaldur skulu ekki vera lægri en alþjóðlegar reglur sam­taka á sviði akstursíþrótta kveða á um. Viðkomandi íþróttasamband skal birta alþjóðlegar reglur um lágmarksaldur á vefsvæði sínu.

 

2. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 41. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 2. júlí 2020.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica